Breytir miklu fyrir álverin

Alcoa Fjarðaál. Uppgangur er í íslenskum áliðnaði.
Alcoa Fjarðaál. Uppgangur er í íslenskum áliðnaði. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samtaka álframleiðenda, Samál, segir hækkun álverðs mikil gleðitíðindi og styrki stoðir íslensks áliðnaðar eftir þungan rekstur síðustu ár. Álverð í kauphöllinni með málma í London (LME) er nú tæplega 2.900 dalir en var til samanburðar um 2.000 dalir í ársbyrjun.

„Þess sjást þegar merki í 15 milljarða fjárfestingu Norðuráls í steypuskála og framundan eru ýmsar fjárfestingar í bættri orkunýtingu, viðhaldi og loftslagstengdum þróunarverkefnum. Það eru góð tíðindi fyrir þann gróskumikla álklasa fyrirtækja sem myndast hefur hér á landi, en bara í fyrra keyptu álverin innlendar vörur og þjónustu fyrir 25 milljarða af hundruðum fyrirtækja. Útflutningstekjur álvera á Íslandi námu um 2010 milljörðum í fyrra, þar af var innlendur kostnaður 93 milljarðar, og búast má við að þessar fjárhæðir eigi eftir að hækka verulega,“ segir Pétur um áhrif hærra álverðs.

Pétur Blöndal.
Pétur Blöndal. mbl.is/Golli

Orkuskiptin auka eftirspurn

Pétur bendir á að rafvæðing bílaflotans eigi þátt í aukinni spurn eftir áli. Með álinu megi gera ökutæki léttari og þannig auka drægni rafhlaða.

Íslensku álverin hafi keypt raforku fyrir um 50 milljarða í fyrra og þar sem orkusamningarnir séu að mestu álverðstengdir sé ljóst að arðsemi orkufyrirtækja hafi aukist verulega.

„Það var fróðlegt að lesa það í Morgunblaðinu [síðastliðinn laugardag] að miðað við meðalverð á þessu ári upp á 2.350 dollara á tonnið mætti búast við að útflutningstekjur ykjust um 60 milljarða vegna álframleiðslu. Vert er að benda á að álverðið er enn hærra núna eða tæpir 3 þúsund dollarar og horfur eru góðar, samkvæmt greiningaraðilum.“

Umskipti á kínverskum álmarkaði

Spurður hvers vegna ál hafi hækkað svo mikið í verði bendir Pétur meðal annars á að Kínverjar séu orðnir nettó innflytjandi á áli. Það séu mikil umskipti frá síðustu árum. Taka muni tíma að auka framboðið samhliða því sem eftirspurnin sé að aukast. Fyrir vikið spái greiningaraðilar háu álverði út næsta ár.

Dregið hafi verið úr framleiðslu í faraldrinum og birgðastaða fyrirtækja sem framleiða úr áli verið í lágmarki, auk þess sem flöskuháls hafi myndast í flutningum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK