Titringur á mörkuðum

Gjaldþrot kínverska fasteignaþróunarfélagsins Evergrande er yfirvofandi.
Gjaldþrot kínverska fasteignaþróunarfélagsins Evergrande er yfirvofandi. AFP

Mikill titringur var á hlutabréfamörkuðum í gær, hér og erlendis. Lækkaði úrvalsvísitalan um 2,98%.

Tryggvi Páll Hreinsson, sjóðsstjóri erlendra hlutabréfasjóða hjá Stefni, segir ástæðuna yfirvofandi gjaldþrot kínverska fasteignaþróunarfélagsins Evergrande. „Félagið hefur stefnt í gjaldþrot síðasta mánuðinn. Skuldabréf þess á erlendum mörkuðum skipta nú um hendur á 25 sent á hvern dollara. Félagið á að standa skil á vaxtagreiðslu á skuldabréfum hinn 23. september nk. sem ólíklegt er að það geti innt af hendi,“ segir Tryggvi.

Hér heima er óvissa í ríkisfjármálum. Samkvæmt ríkisfjármálaáætlun er gert ráð fyrir að vaxtagjöld A-hluta ríkissjóðs Íslands næstu fimm ár verði samtals um 397 milljarðar króna. Nýverið gaf fjármálaráðuneytið út skýrslu um mat á efnahagsaðgerðum vegna faraldursins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK