CRI gerir samning við kínverskt fyrirtæki

Ingólfur Guð­munds­son, forstjóri CRI.
Ingólfur Guð­munds­son, forstjóri CRI. Ljósmynd/Aðsend

Kínverski efnaframleiðandinn Jiangsu Sailboat Petrochemicals hefur undirritað 4,6 milljarða króna samning við íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling International (CRI) um byggingu verksmiðju til framleiðslu á metanóli með endurvinnslu koltvísýrings.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá CRI.

Samningur um samstarfið verður undirritaður mánudaginn 27. september á fjarfundi milli Reykjavíkur og Peking, að viðstöddum Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra, Jin Zhijian, sendiherra Kína á Íslandi og Þóri Ibsen, sendiherra Íslands í Kína, auk fjölda gesta frá kínverskum stjórnvöldum og fyrirtækjum.

Með búnaði CRI verða 150.000 tonn af koltvísýringi, sem fönguð eru úr efnaferli Jiangsu Sailboat, nýtt til að framleiða um 100.000 tonn af metanóli, en vetni til framleiðslunnar er fengið úr öðrum úrgangsstraumi verksmiðjunnar, eins og segir í tilkynningunni.

Áþreifanlegur árangur í baráttunni við loftslagsbreytingar

Stefnt er að því að framleiðsla með tækni CRI hefjist strax á næsta ári, en afurðin, metanólið, er meðal annars notuð við framleiðslu á sólarrafhlöðum og plexigleri. 

„Við hjá CRI erum afar stolt af því að geta boðið samstarfsaðilum okkar þaulreynda tækni sem gerir strax áþreifanlegt gagn í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Með því að nýta þessa tækni í efnaframleiðslu getum við fyrr leyst jarðefnaeldsneyti af hólmi. Það sem áður fór til spillis verður að orku og hráefni. Þannig byggjum við upp öflugt en umhverfisvænna hagkerfi,“ er haft eftir Ingólfi Guðmundssyni, forstjóri CRi, í fréttatilkynningunni.

„Þetta verkefni samræmist fullkomlega stefnu Shenghong Petrochemical um virka þróun hringrásarhagkerfisins. Við leggjum áherslu á örugga þróun, minni losun og hagfellda notkun takmarkaðra auðlinda, með endurnýtingu. Hér er stigið stórt skref í áætlun okkar um að byggja upp græna virðiskeðju, með bestu nýtingu hráefna, hreinni framleiðslu og að verða leiðandi fyrirtæki í heiminum á þessu sviði,“ er haft eftir Wei Bai, forstjóri Jiangsu Sailboat.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK