Spá fleiri ferðamönnum en fyrir faraldur

„Harðar og sí­breyti­leg­ar sótt­varn­aaðgerðir á landa­mær­un­um fæla er­lend flug­fé­lög frá …
„Harðar og sí­breyti­leg­ar sótt­varn­aaðgerðir á landa­mær­un­um fæla er­lend flug­fé­lög frá land­inu. Þessi þróun er mikið áhyggju­efni,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þró­un­ar hjá Isa­via. mbl.is/Árni Sæberg

Ef bjartsýnustu spár ganga eftir gætu fleiri farþegar farið um Keflavíkurflugvöll árið 2024 en árið 2019, þ.e. áður en kórónuveirufaraldurinn skall á. Ný samantekt Isavia um mögulegan fjölda farþega um Keflavíkurflugvöll næstu þrjú árin leiðir þetta í ljós.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

„Rúmlega 7 milljónir farþega fóru um völlinn árið 2019 en í fyrra voru þeir aðeins 1,3 milljónir í samdrættinum vegna faraldursins. Sviðsmyndir félagsins gera ráð fyrir að þeir verði um 2,2 milljónir í ár, á bilinu 4-5 milljónir á næsta ári, 4-6 milljónir 2023 og síðan á bilinu 5,5 til 7,9 árið 2024,“ segir í tilkynningunni.

7,9 milljónir farþega m.v. bjartsýnustu spá

Samantektin sem um ræðir er ekki eiginleg farþegaspá en Isavia telur ómögulegt að gefa út slíka spá vegna mikillar óvissu í flugheiminum. Síðasta farþegaspá kom út fyrir faraldurinn en hún átti við um árið 2020. 

„Þessar sviðsmyndir sem hér um ræðir eru gerðar m.a. til að auðvelda rekstraraðilum á flugvellinum að gera áætlanir fram í tímann og setja fram mögulegar forsendur, t.d. í samkeppni um aðstöðu fyrir þjónustu á vellinum,“ er haft eftir Guðmundi Daða Rúnarssyni, framkvæmdastjóra viðskipta og þróunar hjá Isavia. „Við gerð þessara farþegaforsendna var m.a. stuðst við opinberlega birtar áætlanir flugfélaga sem fljúga um Keflavíkurflugvöll.“

Ef bjartsýnasta spá Isavia fyrir árið 2024 gengur eftir verða farþegar um Keflavíkurflugvöll tæpar 7,9 milljónir það ár. Það yrði það þriðji mesti farþegafjöldi sem farið hefur um flugvöllinn á einu ári. Farþegar voru fleiri árin 2017 og 2018.

„Rétt er þó að hafa í huga að lítið má í raun út af bregða til að þessar spár rætist ekki,“ er haft eftir Guðmundi Daða. „Endurheimt flugfarþega um Keflavíkurflugvöll þarf að vera hraðari en í sumar og haust. Harðar og síbreytilegar sóttvarnaaðgerðir á landamærunum fæla erlend flugfélög frá landinu. Þessi þróun er mikið áhyggjuefni. Flugtengingar tapast eða þeim fjölgar a.m.k. ekki en þessar tengingar eru mikilvæg forsenda lífsgæða á Íslandi.“

Ferðamenn í Reynisfjöru.
Ferðamenn í Reynisfjöru. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hafa endurheimt 79% áfangastaða

Guðmundur Daði bendir á að sumarið hafi gengið vel á Keflavíkurflugvelli – endurheimtin verið betri en á samkeppnisflugvöllum annars staðar í heiminum.

„Keflavíkurflugvöllur hefur í ár endurheimt 79% þeirra áfangastaða sem voru í boði 2019 samanborið við 72% í Kaupmannahöfn, 71% í Ósló, 67% í Stokkhólmi og 59% í Helsinki. Mikilvægt er að glutra þessu ekki niður nú þegar vel gengur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK