Umbrot á orku- og álmarkaði

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkssviðs Samtaka iðnaðarins.
Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkssviðs Samtaka iðnaðarins. Ljósmynd/Aðsend

Orkukreppa geisar á meginlandi Evrópu og hefur orkuverð ríflega tvöfaldast á stærstu mörkuðum.

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, segir líklega um skammtímasveiflu að ræða.

Raunar sé búist við að orkuverðið fari aftur lækkandi, í ljósi stóraukinnar áherslu á framleiðslu endurnýjanlegrar orku. Sú framleiðsla verði að hluta niðurgreidd með ívilnunum. Það muni aftur hafa áhrif á samkeppnisstöðu Íslands.

Tækifærin háð orkuvinnslu

„Þannig að við þurfum að nýta okkar samkeppnisforskot sem snýr ekki aðeins að orkuverði og sveiflum á því heldur þeirri staðreynd að hér eru 99,9% orkunnar nú þegar endurnýjanleg. Tækifærin sem geta skapast hér á landi eru hins vegar háð því að frekari orkuvinnsla eigi sér stað,“ segir Sigríður.

Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, segir orkuskort í Kína skýra að hluta hækkandi álverð en álframleiðslan þar sé fimm milljónum tonna minni en ella. Álverð fór í gær yfir 3.100 dali í kauphöllinni í London og hefur það ekki gerst síðan 2008.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK