Gestur lætur af störfum sem framkvæmdastjóri ELKO

Gestur Hjaltason lætur af störfum sem ramkvæmdastjóri Elko.
Gestur Hjaltason lætur af störfum sem ramkvæmdastjóri Elko. Mynd/mbl.is

Gestur Hjaltason hefur óskað eftir að láta af störfum sem framkvæmdastjóri ELKO frá og með 31. desember næstkomandi en hann hefur sinnt starfinu síðan 2002.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Festi til Kauphallar Íslands. 

Stjórn ELKO hefur ráðið Óttar Örn Sigurbergsson sem framkvæmdastjóra frá 1. janúar 2022. Óttar hefur starfað hjá félaginu síðan 2004, nú síðast sem aðstoðarframkvæmdastjóri ELKO og mun Gestur vera honum innan handar fram á mitt næsta ár.

„Ég vil þakka Gesti fyrir frábært samstarf á undanförnum árum. Það er óhætt að segja að Gestur hafi haft mikil og jákvæð áhrif á rekstur og velgengni ELKO í áranna rás enda stýrt félaginu af mikilli elju í hartnær 20 ár. Fyrir hönd stjórnar ELKO og Festi óska ég Gesti velfarnaðar á þessum tímamótum. Það er mikill happafengur að fá Óttar til að taka við keflinu þar sem hann þekkir afar vel til starfsemi ELKO eftir 17 ára starf í þágu félagsins,“ er haft eftir Eggert Þór Kristófersyni, forstjóra Festi, í tilkynningunni.

„Á þessum tímamótum vil ég þakka því góða og frábæra fólki sem ég hef starfað með og átt í viðskiptum við í gegnum árin hjá ELKO. Það hafa verið forréttindi að vera hluti af þeirri liðsheild sem ELKO býr yfir og er ég stoltur að þeim árangri sem við höfum í sameiningu náð. Ég skil við félagið í traustum höndum Óttars sem fær það verðuga verkefni að nýta þau fjölmörgu tækifæri sem liggja í sístækkandi rafvöru- og smásölumarkaði,“ er haft eftir Gesti Hjaltasyni, framkvæmdastjóra ELKO, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK