Reynir nýr forstöðumaður fyrirtækjasviðs N1

Reynir Leósson.
Reynir Leósson.

N1 hefur ráðið Reyni Leósson sem nýjan forstöðumann fyrirtækjasviðs. Reynir kemur til N1 frá VÍS þar sem hann hefur undanfarin þrjú ár starfað sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar.

Þá segir að Reynir hafi einnig leitt fyrirtækjaráðgjöf VÍS, hefur hann sinnt starfi forstöðumanns fyrirtækjasölu Vodafone og verið framkvæmdastjóri auglýsinga hjá Sagafilm. Reynir er með B.ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands og MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Hann er giftur Katrínu Rós Baldursdóttur, sem vinnur í ferlastýringu hjá Össuri hf. og eiga þau tvo drengi.

„Reynir kemur til starfa með umfangsmikla reynslu og mun bera ábyrgð á því að leiða og þróa þjónustu og sölu til fyrirtækja hjá N1, ásamt því að auka enn frekar alla stafræna þjónustu, enda vex vefverslun okkar hratt  fiskur um hrygg. Reynir er góður liðsauki og fyrirtækjasvið mun eflast verulega við komu hans,“ er haft eftir Hinriki Erni Bjarnasyni, framkvæmdastjóra N1.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK