Róbert Wessman kaupir vínekru í Frakklandi

Frá undirritun kaupsamningsins í Frakklandi. Frá vinstri: Róbert Wessman, David …
Frá undirritun kaupsamningsins í Frakklandi. Frá vinstri: Róbert Wessman, David Fourtout og Ksenia Shak­hmanova, eiginkona Róberts. Ljósmynd/Aðsend

Róbert Wessman, eigandi Maison Wessman, hefur gengið frá kaupum á 45 hektara vínekru Vignoble des Verdots  auk verslunarhúsnæðis í Saint-Cernin-de-Labarde í Frakklandi.

David Fourtout, fyrrverandi eigandi Vignoble des Verdots, og Róbert Wessman undirrituðu í vikunni kaupsamning á Maison Wessman í Périgord í Frakklandi.

„Með kaupunum verður til öflugt safn eðalvína frá svæðinu sem mun styðja við vöxt Maison Wessman sem og Vignoble de Verdots í Frakklandi og á alþjóðavettvangi,“ segir í tilkynningu, en Róbert er forstjóri Alvogen og stofnandi Alvotech.

Vínekran.
Vínekran. Ljósmynd/Aðsend

Verdots-víngarðurinn er staðsettur í Conne-de-Labarde, á landi sem er að mestu úr leir, tinnu og kalksteini. Vignoble des Verdots er þekkt fyrir gæði vínanna. Á 18 hekturum hafa verið gróðursettar hvítu þrúgutegundirnar Sémillon, Sauvignon Blanc og Sauvignon Gris et Muscadelle og á um 26 hekturum hafa verið gróðursettar rauðar þrúgutegundir; Merlot, Cabernet Sauvignon, Cabernet Franc og Malbec.

Öldrunarkjallari byggður inn í klett

Öll framleiðsla Vignoble des Verdots er sjálfbær en um 150.000 flöskur af Clos des Verdots, Château Les Tours des Verdots og Grand Vin „Les Verdots“ voru framleiddar þar árið 2020.

Fram kemur að eitt af aðaleinkennum Vignoble des Verdots sé neðanjarðar öldrunarkjallarinn sem er byggður inn í klett. Hann er staðsettur fyrir ofan á sem rennur neðanjarðar og  kallast „Les Verdots“ en áin uppgötvaðist fyrir tilviljun við framkvæmdir á vínkjallaranum.

„Áin er óaðskiljanlegur hluti af öldrun og þroska vínanna í kjallaranum þar sem hún virkar sem náttúruleg loftkæling. Framleiðslan hjá Vignoble des Verdot er sjálfbær og notkun meindýraeyða er í algjöru lágmarki. Þá hefur verið þróuð þar aðferð við vínræktunina sem virðir umhverfið án stórfelldrar efnafræðilegrar meðferðar. Vignoble des Verdot fylgir starfsaðferðum sem byggir á virðingu og umhyggju fyrir fólki og umhverfinul,“ segir í tilkynningunni.

David Fourtout og Róbert Wessman.
David Fourtout og Róbert Wessman. Ljósmynd/Aðsend

Segir gæðin mikil 

„Gæði Bergerac-vínanna er mikil en þau hafa ekki náð heimsathygli líkt og stóru frönsku vínin,“ segir Róbert Wessman nýr eigandi Vignoble des Verdots.

„Fyrir tæpum 20 árum keypti ég Château de Saint-Cernin, sem er nálægt Bergerac. Það gerði mér kleift að uppgötva hve frábær vínin eru í Bergerac . Það felast mikil tækifæri að auka veg þessara vína. Ég hef alltaf verið sérstaklega hrifinn af Vignoble des Verdots vínunum og markmið mitt er að vinna að því að þau komist á þann stall sem þau eiga skilið á alþjóða vettvangi,“ bætir hann við.  

Í tilkynningunni segir jafnframt að Róbert hafi brennandi áhuga á víni og deilir hann þeim áhuga með eiginkonu sinni. Eftir áralanga leit fundu þau umrædda vínekru með aðsetur í hjarta Périgord Pourpre, til að framleiða hágæða vín.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK