Afkomuspá Pfizer hækkar enn

Áætlaðar tekjur Pfizer á þessu ári hafa rúmlega tvöfaldast.
Áætlaðar tekjur Pfizer á þessu ári hafa rúmlega tvöfaldast. AFP

Horfur lyfjafyrirtækisins Pfizer halda áfram að vænkast en Covid-19 bóluefni þess og BioNTech selst í milljarðavís. Á sama tíma hefur markaðsleyfi bóluefnisins verið útvíkkað í Bandaríkjunum svo það nái einnig til barna á aldrinum 5-11 ára.

Úr 15 milljörðum dala í 36

Pfizer gerir ráð fyrir því að fyrirtækið muni afhenda 2,3 milljarða skammta af bóluefninu á þessu ári. Það er um 200 milljónum fleiri en áætlanir gerðu ráð fyrir í júlí. Vegna þessa hefur tekjuhluti afkomuspár félagsins hækkað upp í 36 milljarða dala úr 15 milljörðum sem var áætlunin í janúar.

Forsvarsmenn félagsins segjast vissir um að umsvif félagsins í tengslum við Covid-19 muni vara hið minnsta út árið 2022 en ætlunin er að selja um 1,7 milljarða skammta á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK