Sotheby's selur glæsihús á Íslandi

Húsið er tæplega 318 fermetrar að flatarmáli og brunabótamat er …
Húsið er tæplega 318 fermetrar að flatarmáli og brunabótamat er 130 m.kr. mbl.is/Unnur Karen

Glæsihúsið Öldugata 16 í Reykjavík er auglýst til sölu á vef sænsku fasteignasölunnar Skeppsholmen Sotheby's International Realty í Svíþjóð á 4,2 milljónir Bandaríkjadala, jafngildi 545 milljóna íslenskra króna. Húsið er tæplega 318 fermetrar að flatarmáli og brunabótamat þess er rúmar 130 milljónir króna.

Í húsinu er 63,5 fm íbúð í kjallara, 106 fm íbúð á hæð og 108 fm íbúð í risi. Bílskúrinn er 40 fm. 461,3 fm lóð fylgir eigninni.

Gildandi fasteignamat eignarinnar er tæpar 144 milljónir króna og fyrirhugað fasteignamat árið 2022 er 150 milljónir króna.

Eins og nafn sænsku fasteignasölunnar ber með sér er hún rekin undir sérleyfi (e. franchise) frá hinu þekkta bandaríska uppboðsfyrirtæki Sotheby's.

Sænski fasteignasalinn Mathias Martinsson, hjá Skeppsholmen Sotheby's International Realty, segir aðspurður í skriflegu svari til ViðskiptaMoggans að húsið sé hið eina sem fyrirtækið er með í sölu á Íslandi þessa stundina. Hann segir að salan sé unnin í samstarfi við íslenskan fasteignasala sem þekki og skilji markaðinn hér heima, eins og Martinsson orðar það í tölvupósti.

Lestu meira um málið í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK