FÍB kvartar yfir afsláttartilboði TM

FÍB segir m.a. að það sé engin leið er fyrir …
FÍB segir m.a. að það sé engin leið er fyrir hagsmunasamtök neytenda á borð við FÍB að gera samanburð á iðgjöldum tryggingafélaga til að geta leiðbeint neytendum og stuðlað að samkeppni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) sendi í dag inn erindi til Neytendastofu þar sem vakin er athygli stofnunarinnar á því að afsláttartilboð TM mánudaginn 29. nóvember brjóti gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

Þetta kemur fram á vef félagins.

Þar segir, að um sé að ræða cyber monday-tilboð um 30% afslátt í eitt ár af tryggingaiðgjöldum nýrra viðskiptavina. Tekið er fram að tilboðið hafi aðeins staðið í einn dag og gilti aðeins fyrir viðskiptavini annarra tryggingafélaga en TM.

FÍB bendir á, að í 11. grein laga nr. 57/2005 segi að við útsölu eða aðra sölu, þar sem selt sé á lækkuðu verði, megi því aðeins auglýsa eða tilkynna að um raunverulega verðlækkun sé að ræða. Þess skuli gætt að greinilegt sé með verðmerkingum hvert hið upprunalega verð vörunnar var.

Upprunalegt verð geti ekki talist vera tilboðsverð

„Engin leið er fyrir nýjan viðskiptavin að sjá fyrra verð á því iðgjaldi sem honum stendur til boða í tilboði TM. Tryggingafélagið birtir ekki verðskrá, heldur sníður tilboð að hverjum og einum einstaklingi. Tilboð TM hverju sinni er því alltaf upprunalegt verð og getur þar af leiðandi ekki talist tilboðsverð. Fullyrðing um 30% afslátt hefur því ekkert gildi. Ekki er um raunverulega verðlækkun að ræða enda liggja engar upplýsingar fyrir um fyrra verð,“ segir FÍB

Félagið ítrekar að afsláttartilboð TM varpi ljósi á þá staðreynd að tryggingafélög birti ekki verðskrár eða forsendur iðgjaldaútreikninga. Engin leið sé fyrir neytendur að gera verðsamanburð öðru vísi en afla tilboða í persónulegar tryggingar sínar hjá hverju og einu tryggingafélagi. Engin leið sé fyrir hagsmunasamtök neytenda á borð við FÍB að gera samanburð á iðgjöldum tryggingafélaga til að geta leiðbeint neytendum og stuðlað að samkeppni.

Leynd yfir iðgjöldum hindri eðlilega verðsamkeppni

„Þessi leynd yfir iðgjöldum og forsendum útreikninga tryggingafélaganna sem starfa á fákeppnismarkaði hindrar eðlilega verðsamkeppni á milli þeirra. FÍB hefur beint því til Samkeppniseftirlitsins að skylda tryggingafélögin til að gera verðsamanburð iðgjalda aðgengilegan. FÍB bendir á að í 16. grein samkeppnislaga eru víðtækar heimildir fyrir Samkeppniseftirlitið til að grípa til aðgerða til að stuðla að virkri samkeppni,“ segir FÍB jafnframt.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK