Seldi hlutabréf fyrir sjö milljarða á einni viku

Davíð Helgason, einn af stofnendum Unity.
Davíð Helgason, einn af stofnendum Unity.

Davíð Helgason hefur selt hlutabréf í hugbúnaðarfyrirtækinu Unity fyrir 55,8 milljónir dala, eða sem nemur 7,2 milljörðum króna á einni viku, en Davíð er einn af stofnendum fyrirtækisins.

Viðskiptablaðið greinir frá því að um sé að ræða stærstu sölu Davíðs í Unity frá því félagið fór á markað í september 2020. Samtals hefur hann áður selt bréf í fyrirtækinu fyrir tæplega 6,2 milljarða króna í nokkrum lotum frá maí til september.

Tímabilið sem nú um ræðir er hins vegar einungis á einni viku, 23.-30. nóvember. Í umfjöllun Viðskiptablaðsins segir að hlutabréfaverð Unity hefur hækkað nokkuð að undanförnu og var meðalsöluverð Davíðs í viðskiptunum í nóvember um 33,5% hærra en þegar hann seldi í september síðastliðnum.

Davíð hefur því selt hlutabréf sem nemur nú 104,2 milljónum dala eða um 13,5 milljarða króna frá því í maí. Hann á þó enn um 3,3% hlut í Unity að markaðsvirði 207 milljörðum króna miðað við gengi krónunnar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK