PLAY bætir við þremur nýjum áfangastöðum

Birgir Jónsson, forstjóri Play.
Birgir Jónsson, forstjóri Play. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flug­fé­lagið Play mun fljúga til þriggja nýrra áfangastaða í Evrópu næsta vor. Um er að ræða Dyflinn á Írlandi, Madríd á Spáni og Brussel í Belgíu.

Samkvæmt tilkynningu frá PLAY verður flogið þrisvar sinnum í viku til Dyflinnar en ferðir til borgarinnar hefjast í lok apríl 2022. Þá verður flogið þrisvar sinnum í viku til Brussel og hefst flug þangað í maí. Áætlunarflug til Madríd hest í júní en þangað verður flogið tvisvar í viku.

Með þessari viðbót við leiðakerfi PLAY eru áfangastaðir félagsins í Evrópu orðnir 23 talsins. Auk Dyflinnar, Madrídar og Brussel bættust nýlega við leiðakerfi PLAY Lissabon í Portúgal, Bologna á Ítalíu, Stuttgart í Þýskalandi og Prag í Tékklandi. Þá mun PLAY hefja áætlunarflug til austurstrandar Bandaríkjanna næsta vor og eru Dyflinn og Brussel lykilborgir þegar kemur að því að flytja flugfarþega yfir Atlantshafið.

Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, segir virkilega ánægjulegt að bæta við enn fleiri áfangastöðum í Evrópu sem styrki leiðakerfi flugfélagsins til muna.

„Þetta eru frábærar borgir sem hafa í gegnum tíðina notið mikilla vinsælda meðal Íslendinga og það er gaman að geta boðið lægsta verðið til þessara þriggja borga eins og til annarra áfangastaða okkar. Þá eru þetta borgir sem eru mikilvægar fyrir farþegaflutninga yfir Atlantshafið,“ segir Birgir.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK