Verðbólgan komin í 5,1%

Hækkun á flugfargjöldum hafði mest áhrif á vísitöluna í þessum …
Hækkun á flugfargjöldum hafði mest áhrif á vísitöluna í þessum mánuði. Verðbólgan er nú komin upp í 5,1%. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vísitala neysluverðs í desember hækkaði um 0,45% frá fyrri mánuði og stendur nú í 515,3 stigum. Mælist ársverðbólgan nú 5,1%, en var í síðasta mánuði 4,8%. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 434,1 stig og hækkar um 0,37% frá nóvember.

Samkvæmt tilkynningu á vef Hagstofunnar hækkuðu flugfargjöld til útlanda um 10,8% milli mánaða, en það hafði áhrif á vísitöluna um 0,14%. Þá hækkaði verð á mat- og drykkjarvörum um 0,7% sem hafði 0,11% áhrif á vísitöluna. Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði hækkaði um 0,6% milli mánaða, en það hefur áhrif upp á 0,1% í vísitölunni.

Ársmeðaltal vísitölu neysluverðs árið 2021 var 503,3 stig, 4,4% hærri en meðalvísitala ársins 2020. Samsvarandi breyting var 2,8% árið 2020 og 3,0% 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK