Sambland leiguvöru og söluvöru

Eggert og Bragi fyrir framan nýju leiguna við Selhellu 1 …
Eggert og Bragi fyrir framan nýju leiguna við Selhellu 1 á Völlunum í Hafnarfirði. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eins og greint var frá í ViðskiptaMogganum á dögunum mun byggingarvöruverslunin Byko opna leigu fyrir fagaðila á nýjum stað á fyrsta fjórðungi næsta árs, á Selhellu 1 í Hafnarfirði.

Í dag rekur Byko leigu fyrir fagaðila á Þórðarhöfða í Reykjavík, þar sem leigð er út grófvara eins og pallar og steypumót, og aðra í verslun félagsins í Breiddinni í Kópavogi. Þar hafa bæði einstaklingar og fagaðilar getað nálgast tæki og tól. Auk þess eru litlar útstöðvar leigunnar í öðrum verslunum fyrirtækisins.

Eggert Kristinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Byko, og Bragi Jónsson, rekstrarstjóri Byko leigu, segja í samtali við Morgunblaðið að flutningur frá Þórðarhöfða hefjist í janúar og formleg opnun leigunnar á Selhellu verði í lok apríl.

Færa miðpunktinn

Þeir segja að sérstaða Byko leigu í Selhellu sé að þar verði blandað saman leiguvöru og söluvöru. „Við erum að færa miðpunkt leigunnar inn á Selhellu og útvíkka þá starfsemi,“ segir Bragi.

Þjónusta og ráðgjöf verður aukin samfara breytingunum, auk þess sem vöruúrval verður mun meira. Í því liggi sérstaða Byko leigu. Lögð verður áhersla á, að sögn þeirra Eggerts og Braga, að fara vandlega yfir það með viðskiptavinum hverju sinni, hvort það borgi sig fyrir þá að leigja tæki eða kaupa nýtt eða notað. Allir valkostir verði í boði.

Eggert segir að markhópur leigunnar sé eins og fyrr sagði fagaðilar á byggingamarkaði en einnig bæjarfélög, stofnanir og einstaklingar.

Bragi segir að rökin fyrir því að leigja hluti í stað þess að kaupa þá séu sífellt að styrkjast. Viðhorf fólks til þess að leigja hafi breyst mikið á síðustu árum samfara aukinni sjálfbærniumræðu. Það að nýta hluti betur sé umhverfisvænt og minnki kolefnisspor.

„Það er að mörgu leyti umhverfisvænna að leigja en kaupa. Leigan er þannig í góðum takti við sjálfbærnistefnu Byko og aukna áherslu á umhverfismál.“ Ýmis vörumerki verða í boði á nýja staðnum, en mest áberandi verður þýska vörumerkið Bosch sem Byko hefur umboð fyrir hér á landi. Þá verður opnað sérstakt Bosch-þjónustuverkstæði í Selhellunni.

„Þarna fáum við tækifæri til að beina athyglinni að Bosch og munum auka verulega við úrval af tækjum og fylgihlutum frá merkinu. Bosch auglýsti nýverið eftir starfsmanni hér á landi í fyrsta skipti og við munum vinna náið með honum. Með ráðningunni er fyrirtækið að efla sig gagnvart fagaðilum.“

Styður við vöxt

Eggert segir að nýja leigan styðji vel við þann vöxt sem fram undan er á byggingamarkaði. „Það er ein ástæðan fyrir því að við viljum gera svona vel við leiguna. Það er svo margt fram undan.“

Nýja leigan verður sett upp eins og sýningarsalur þar sem fólk getur fengið sér kaffibolla, skoðað úrvalið í ró og næði og fengið góða þjónustu og ráðgjöf. Eins og Bragi útskýrir er leiguhugmyndafræðin á fullri ferð í heiminum og nær alla leið inn á heimilin. „Til dæmis gætirðu sett upp þvottavél heima hjá þér sem birgirinn á en ekki þú. Vélin er nettengd og þú borgar fyrir hvern þvott. Þá er kominn hvati fyrir fólk að nota vélarnar á hagkvæmari hátt.“

Bragi nefnir fleiri nýjar hugmyndir eins og notkun snjalllausna. „Ef þú ferð aldrei hærra en 10 metra upp í loftið í 14 metra vinnulyftu þá væri hægt að benda viðskiptavini á að spara pening með því að leigja minni lyftu. Þannig verður snjallvæðingin og gagnavinnslan til þess að betri ákvarðanir eru teknar og sóun minnkar.“

Góð áhrif faraldurs

Eggert segir að faraldurinn hafi haft áhrif til góðs að því leyti að verktakar sýni nú meiri þolinmæði, skipuleggi sig betur og séu fyrirhyggjusamari. Það hafi þeir neyðst til að gera vegna þess að aðfangakeðja heimsins hefur laskast í faraldrinum og ekki er lengur hægt að stóla á að vörur berist með sama hraða til landsins og áður. „Eitt af því sem faraldurinn hefur kennt okkur eins og fleirum er að eiga til meiri birgðir í landinu vegna lengri afhendingartíma.“

Önnur nýjung sem verið er að innleiða í starfsemi leigunnar er nýtt tölvukerfi sem styðja mun framtíðarlausnir á sviðinu, eins og innleiðingu snjalllausna. „Það er töluvert mikil framför fyrir okkur. Við náum með nýja kerfinu miklu betur utan um tækjalagerinn og getum stýrt honum betur. Þannig náum við að nýta fjárfestinguna betur og minnka sóun,“ segja þeir Eggert og Bragi að lokum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK