„Stefnir í stórkostleg vandræði fyrir atvinnulífið“

Að sögn félagsins stefnir í gífurleg vandræði hjá fjölda fyrirtækja …
Að sögn félagsins stefnir í gífurleg vandræði hjá fjölda fyrirtækja vegna þess að starfsfólk er skikkað í einangrun og sóttkví. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Félag atvinnurekenda kallar eftir því að íslensk stjórnvöld fari að ræða breytingu á sóttvarnaaðgerðum, annars vegar í ljósi þess að Ómíkron-afbrigði veirunnar virðist vægara og hins vegar vegna góðrar stöðu landsins hvað varðar bólusetningar.

Þetta kemur fram í færslu á facebooksíðu félagsins.

„Að óbreyttu stefnir í stórkostleg vandræði fyrir atvinnulífið með einangrun og sóttkví þúsunda manna,“ segir í færslunni. 

Þar er enn fremur bent á fregnir frá Bandaríkjunum þar sem ákveðið hefur verið að stytta einangrunartíma einkennalausra niður í fimm daga og að þeir sem þar þiggja örvunarskammt sleppi við sóttkví en þurfi aðeins að bera grímu þess í stað.

„Eins og áður segir stefnir í gífurleg vandræði hjá fjölda fyrirtækja vegna þess að starfsfólk er skikkað í einangrun og sóttkví. Stjórnvöld hljóta að þurfa að endurmeta stöðuna og skoða hvernig beita megi meðalhófi þannig að atvinnulífið lamist ekki að óþörfu vegna þeirrar smitbylgju sem nú rís.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK