Maskína og MMR sameinast um áramótin

Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu.
Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu. Ljósmynd/Aðsend

Rannsóknarfyrirtækin Maskína og MMR munu sameinast 1. janúar undir hatti Maskínu. 

„Markmiðið með sameiningunni er sem fyrr að leggja áherslu á gæðakannanir, stuttar boðleiðir og afbragðsþjónustu“ er haft eftir Þóru Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóri Maskínu, í tilkynningu.

Þóra stofnaði, ásamt Þorláki Karlssyni, Maskínu árið 2010 og Ólafur Þór Gylfason stofnaði MMR fyrir 15 árum síðan og verður hann sviðsstjóri markaðsrannsókna hjá Maskínu.

„Maskína mun bjóða upp á markaðs- og viðhorfskannanir, þjónustu- og starfsmannakannanir auk fjölbreyttra aðferða við eigindlegar rannsóknir,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK