Ánægð með árangurinn af samtali við ríkisstjórnina

Jóhannes segir samtökin hafa sent stjórnvöldum ítarlegar tillögur um þetta …
Jóhannes segir samtökin hafa sent stjórnvöldum ítarlegar tillögur um þetta í byrjun desember og þær verið ásamt öðru til umfjöllunar innan stjórnarráðsins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jóhannes þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir samtökin vera ánægð með árangurinn af samtali sínu við ríkisstjórnina, en hún ákvað á fundi sínum í dag að leggja fyr­ir Alþingi frum­varp sem heim­il­ar fyr­ir­tækj­um í til­tekn­um flokk­um veit­ingaþjón­ustu, sem hafa orðið að sæta tak­mörk­un­um á opn­un­ar­tíma vegna kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins, að fresta staðgreiðslu skatta og greiðslu trygg­inga­gjalds.

Auk þess verður um­sókn­ar­frest­ur vegna al­mennra viðspyrnustyrkja fyr­ir nóv­em­ber 2021 fram­lengd­ur, að því er fram kem­ur á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðuneyt­is­ins.

Sendu stjórnvöldum ítarlegar tillögur

„Þetta er náttúrulega bara mjög jákvætt og mikilvægt að þarna er komið til móts við þær raddir eins og okkar hjá SAF sem að höfum verið að benda á að þessi fyrirtæki hafi lent svolítið utangarðs í aðgerðunum hingað til,“ segir Jóhannes í samtali við mbl.is.

„Þarna er komið myndarlega sýnist mér til móts við þetta, náttúrulega bara í samræmi við það sem við höfum verið að ræða við stjórnvöld undanfarnar vikur.“

Jóhannes segir samtökin hafa sent stjórnvöldum ítarlegar tillögur um þetta í byrjun desember og þær verið ásamt öðru til umfjöllunar innan stjórnarráðsins.

„Við erum mjög ánægð með árangurinn af þessu samtali okkar við ríkisstjórn.“

Jóhannes telur það einnig vera gott að sjá að það standi til að framlengja eða bæta við úrræðum fyrir ferðaþjónustu- og menningarstarfssemi í kjölfarið. Ferðaþjónustufyrirtæki horfi núna fram á þungar vikur framundan, þar sem takmarkanir þrengi að ýmsum rekstri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK