Sjóvá svarar gagnrýni FÍB

Sjóvá segir málið snúast um annað.
Sjóvá segir málið snúast um annað. mbl.is/Árni Sæberg

Tryggingafélagið Sjóvá segir að fullyrðingar Félags íslenskra bifreiðaeigenda, þar sem Sjóvá var sökuð um að rifta samningi um vegaaðstoð vegna gagnrýni FÍB á félagið, séu rangar.

„Samningur Sjóvá við FÍB um að veita vegaaðstoð hefur verið í gildi í 15 ár, eða frá árinu 2007 og á þeim tíma hefur FÍB oft stigið fram með gagnrýni á störf félagsins. Aldrei hefur það haft áhrif á samstarfið. Það að FÍB skuli gera tímasetningu uppsagnar að fréttamat nú kemur okkur afar spánskt fyrir sjónir,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

„Ekki er hægt að álykta annað en að stjórn­end­ur Sjóvár hafi sagt viðskipt­un­um upp til að refsa FÍB fyr­ir gagn­rýni á 5 millj­arða króna greiðslur til hlut­hafa trygg­inga­fé­lags­ins. Upp­sögn­in barst í lok októ­ber, aðeins fjór­um vik­um eft­ir að FÍB birti áskor­un til Sjóvár um að skila of­tekn­um iðgjöld­um til viðskipta­vina frek­ar en láta þau renna í vasa hlut­hafa,“ sagði í tilkynningu frá FÍB fyrr í dag.

Snúist um bestu þjónustuna

Sjóvá segir í svari nú síðdegis að vegaaðstoð Sjóvár snúist um að bregðast hratt og örugglega við þegar viðskiptavinir þess séu með straumlausa bíla eða sprungin dekk.

„Á þeim markaði eins og öðrum ríkir samkeppni. Með það að leiðarljósi var samið við annan aðila um samstarf með vegaaðstoð og samningi við FÍB sagt upp í kjölfarið. Þessi breyting snýst eingöngu um að veita viðskiptavinum Sjóvá bestu þjónustu sem völ er á hverjum tíma. Sjóvá þakkar FÍB fyrir 15 ára samstarf.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK