Fjárfesta í Arctic Theory fyrir 260 milljónir

Gísli Konráðsson, einn af stofnendum Arctic Theory, og Sigurður Arnljótsson, …
Gísli Konráðsson, einn af stofnendum Arctic Theory, og Sigurður Arnljótsson, fjárfestingastjóri hjá Brunni Ventures. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Arctic Theory hefur tryggt sér 260 milljóna króna fjármögnun frá Brunni vaxtarsjóði II sem er stýrt af Brunni Ventures og Landsbréfum.

Fjármagnið verður nýtt til að þróa leikjaheim fyrirtækisins enn frekar ásamt því að ráða fleira starfsfólk, að því er kemur fram í tilkynningu.

Arctic Theory var stofnað í júní árið 2020 af þeim Matthíasi Guðmundssyni, Gísli Konráðssyni, Snorra Sturlusyni og Jóni Bjarna Bjarnasyni. Þeir eru með áralanga reynslu í tölvuleikjaiðnaðinum og hafa komið að nokkrum metnaðarfyllstu tölvuleikjum á síðustu áratugum, þar á meðal EVE Online, The Sims og fleiri.

Einnig hafa þeir tekið þátt í uppbyggingu stærstu tölvuleikjafyrirtækja á Íslandi í gegnum árin. Má þar nefna CCP Games, 1939 Games, Parity Games og Directive Games.

Fyrirtækið, sem er með höfuðstöðvar í Hafnarfirði, er í miðri þróun á fyrsta fjöldaspilunarleik sínum sem verður aðgengilegur í lok þessa árs. Leikurinn er innblásinn af íslenskri náttúru þar sem náttúruöfl hafa mikið að segja.

Ljósmynd/Aðsend

„Ég hef mikla trú á því að við stöndum á tímamótum þegar kemur að stafrænum samfélögum. Fjölspilunar tölvuleikir svo sem Roblox, Minecraft og Fortnite hafa síðustu ár sprengt utan af sér tölvuleikjarammann og hafa búið til grunn fyrir nýja tegund af samfélagsheimum (e. metaverse). Þessi breyting sést best hjá yngri kynslóðinni sem notar rauntíma upplifanir í samveru og samskiptum, til dæmis eins og í leiknum Fortnite. Gömlu samfélagsmiðlarnir, eins og Facebook berjast í bökkum við að halda í notendur og reyna að laga sig að þessum nýja heimi með misjöfnum árangri. Við hjá Arctic Theory erum í einstakri stöðu til að vera leiðandi í þróun samfélagsheima“, segir Gísli Konráðsson, einn af stofnendum Arctic Theory, í tilkynningunni.

Á síðasta ári fékk Arctic Theory styrk frá Tækniþróunarsjóði til að þróa hermunartæknina GenOS. Tæknin opnar fyrir möguleika á land- og veðurfræðilegum breytingum í fjöldaspilunarumhverfi í rauntíma á áður óþekktum skala. GenOS tæknin er sérstök að því leyti að hún er hönnuð fyrir upplifanir í samfélagsheimum (e. metaverse). 

Leikurinn verður aðgengilegur í prufuútgáfu fyrir lok árs 2022 á PC tölvur og mun síðar vera aðgengilegur á öðrum leikjatölvum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK