Fundu gull í 27 af 51 tilraunaholu

Eldur Ólafsson, forstjóri fyrirtækisins AEX Gold.
Eldur Ólafsson, forstjóri fyrirtækisins AEX Gold.

Kanadíska námuvinnslufyrirtækið AEX Gold hefur fundið mikið magn gulls eftir tilraunaboranir á Grænlandi í fyrra. Íslendingurinn Eldur Ólafsson stofnaði og stýrir félaginu, en í tilkynningu vegna fundarins er haft eftir honum að með þessu sé félagið að ná þeim markmiðum sem það hafi sett sér og að frekari niðurstöður og framkvæmdaáætlun þessa árs verði kynnt á næstu mánuðum.

Í tilkynningu frá AEX Gold kemur fram að þetta séu bestu niðurstöður sem félagið hafi fengið í tilraunaborunum sínum á síðastliðnum sjö árum, en hæsta gildið af gulli hafi verið 139 grömm af gulli á hvert tonn af grjóti.Segir jafnframt að í venjulegri neðanjarðarnámu sé þetta gildi á bilinu 4-6 grömm á tonn.

Tilraunaboranirnar fóru fram á svæði í Suður Grænlandi sem kallað er Nalunaq. Nalunaq náman er neðanjarðarnáma, en á árunum 2004 til 2013 voru um 360.000 únsur af gulli unnar á þremur vinnslusvæðum. AEX Gold skoðar nú hvort enn sé þar óunnið gull og notast við svokallað berggangamódel  (e. Dolerite Dyke Model). Telur félagið að fundurinn núna renni styrkari stoðum undir þessa aðferðafræði og því sé ekkert til fyrirstöðu að hefja vinnslu, en vinnsluleyfi eru þegar til staðar, auk stórs hluta nauðsynlegra innviða.

Félagið telur einnig að hægt verði að grafa á fimm áður óþekktum svæðum sem það telur hafa háan gullstyrk. Áætlað magn gulls í meginæðinni í Nalunaq er um 251.000 únsur í styrknum 18,5 g/t, en AEX gerir ráð fyrir því að magn gulls í æðinni geti verið allt að tveimur milljónum únsa. 

Félagið er skráð í kauphallirnar í Toronto og London, en meðal stærstu hluthafa þess eru íslenskir fjárfestar, þjóðarsjóðir Grænlands og Danmerkur og stærsti lífeyrissjóður Grænlands. Félagið var stofnað árið 2017 með megináherslu á gullleit og gullrannsóknir á Grænlandi. Hefur félagið leyfi til að leita að og vinna gull og aðra málma í Suður-Grænlandi, en stærsta eign félagsins er fyrrnefnd gullnáma.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK