Olís kynnir breytt merki

Nýtt merki félagsins.
Nýtt merki félagsins.

Fyrirtækið Olís hefur ákveðið að breyta vörumerkjunum Olís og ÓB.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að undanfarna mánuði hafi Olís „stigið fyrstu skrefin í umbreytingavegferð félagsins“.

Sú vegferð feli í sér meðal annars í sér breyttar áherslur í vöru- og þjónustuframboði Olís, samhliða uppfærslu á ásýnd vörumerkja og þjónustustöðva.

Gamla merkið sést hér.
Gamla merkið sést hér. mbl.is/Sigurður Bogi

Vildu sýna sögunni virðingu

„Andlitslyfting á vörumerkjum Olís og ÓB endurspeglar þær breytingar sem við erum að kynna til leiks í starfsemi félagsins. Olís er rótgróið og traust vörumerki og fyrirtækið á sér mikla sögu. Við vildum sýna sögunni virðingu en um leið nútímavæða útlit vörumerkisins,“ er haft eftir Frosta Ólafssyni, framkvæmdastjóra Olís, í tilkynningu.

„Jafnframt viljum við tengja útlit vörumerkjanna Olís og ÓB betur saman, en ólík litasamsetning þeirra endurspeglar mismunandi áherslur í þjónustustigi og verðlagningu. Á næstu mánuðum munum við kynna fleiri nýjungar í þjónustu- og vöruframboði fyrirtækisins samhliða ýmsum ásýndarbreytingum,“ segir Frosti.

Nýtt merki ÓB.
Nýtt merki ÓB.

Mæti þörfum viðskiptavina á breiðari grunni

„Vegferðin okkar miðar fyrst og fremst að því mæta þörfum viðskiptavina á breiðari grunni en við höfum gert hingað til. Hjá Olís finnurðu vini við veginn og allir eru velkomnir. Við hlökkum til framhaldsins og búum vel að því að fyrirtækið byggir á traustum grunni og gildum.“

Olís rekur um 70 þjónustu­ og sjálfsafgreiðslustöðvar um allt land undir merkjum Olís og ÓB. Breytt vörumerki Olís og ÓB eru sögð munu birtast jafnt og þétt á afgreiðslustöðum fyrirtækisins á næstu dögum og vikum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK