Hildur nýr formaður Kvenna í orkumálum

Hildur var kjörin formaður í gær.
Hildur var kjörin formaður í gær. Ljósmynd/Aðsend

Hildur Harðardóttir, verkefnisstjóri á sviði samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun, var kjörin formaður Kvenna í orkumálum (KíO) á aðalfundi félagsins þann 5. maí. Hildur tekur við af Hörpu Pétursdóttur, stofnanda félagsins og formanni frá árinu 2016.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Það eru spennandi tímar framundan í orkumálum og mikilvægt að konur hafi sterka rödd. Ég hlakka til að vinna með góðum hópi kvenna í KíO að framgangi félagsins og styrkja tengsl og þekkingu kvenna í geiranum,“ segir hinn nýi formaður.

Harpa Pétursdóttir og Hildur Harðardóttir.
Harpa Pétursdóttir og Hildur Harðardóttir. Ljósmynd/Aðsend

Sex nýjar stjórnarkonur

Lovísa Árnadóttir hjá Samorku og Svandís Hlín Karlsdóttir hjá Landsneti voru endurkjörnar í stjórn til næstu tveggja ára. Sex nýjar stjórnarkonur taka sæti, þær Ásgerður K. Sigurðardóttir hjá Landsvirkjun, Birna Bragadóttir hjá Orkuveitunni, Dagný Ósk Ragnarsdóttir hjá Landsvirkjun og Silja Rán Steinberg Sigurðardóttir hjá RARIK. Varamenn eru Amel Barich hjá GEORG og Ásdís Benediktsdóttir hjá ÍSOR.

„Það hafa orðið verulegar hreyfingar í jafnréttismálum í orkugeiranum á síðustu árum. Ég tel að Konur í orkumálum hafi spilað lykilhlutverk þarna og ýtt kröftuglega undir þá þróun. Ég er því afar stolt af okkar vinnu og framlagi til þessa mikilvæga málefnis síðustu sex árin og hlakka til að fylgjast nú með félaginu vaxa enn frekar,“ segir Harpa, fráfarandi formaður.

Konur í orkumálum er félag þeirra sem starfa í orku- og veitugeiranum á Íslandi eða hafa áhuga á honum. Félagið er opið öllum sem telja tilgang félagsins sig varða og vilja stuðla að framgangi félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK