Styrmir til liðs við N1

N1.
N1. Ljósmynd/Aðsend

Styrmir Hjalti Haraldsson hefur verið ráðinn í stöðu sérfræðings á Orkusviði N1 en helstu verkefni hans munu snúa að greiningu á raforkumarkaði. Styrmir Hjalti hefur meðal annars sinnt kennslu við Háskólann í Reykjavík.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá N1.

Styrmir Hjalti kenndi við verkfræði- og viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Þar áður starfaði hann hjá Samkaupum sem verkefnastjóri í tekjustýringu.

Hann er með M.Sc.-gráðu í fjármálum og hagfræði frá The London School of Economics
(LSE) og lauk B.Sc.-prófi í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Styrmir Hjalti Haraldsson.
Styrmir Hjalti Haraldsson.

Styrkir hópinn

„Það er mikill styrkur í því að fá Styrmi til starfa og kemur hann til N1 með þekkingu í
farteskinu sem mun nýtast vel hér á Orkusviði. Góð greining á raforkumarkaði er veigamikill
hluti af sókn N1 Rafmagns þegar kemur að sölu raforku til heimila og fyrirtækja og rímar sú
áhersla vel við markmið félagsins um aukið vægi á sölu á umhverfisvænni orku. Við bjóðum
því Styrmi velkominn til starfa á Orkusvið félagsins sem fer nú sístækkandi í takt við aukin
umsvif,“ er haft eftir Einari Sigursteini Bergþórssyni, forstöðumanni Orkusviðs N1, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK