Mikil aukning í kortaveltu bæði innanlands og erlendis

Samanlagt jókst kortavelta um 25% milli ára miðað við fast …
Samanlagt jókst kortavelta um 25% milli ára miðað við fast gengi og fast verðlag. Þetta er mesta aukning sem mælst hefur milli ára. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Velta innlendra greiðslukorta jókst um 25% að raunvirði milli ára í apríl. Ólíkt fyrstu 3 mánuðum ársins þegar verslun jókst einungis erlendis þá var aukning milli ára bæði innanlands og erlendis.

Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans. 

„Seðlabanki Íslands birti fyrir helgi gögn um veltu innlendra greiðslukorta í apríl. Samanlagt jókst kortavelta um 25% milli ára miðað við fast gengi og fast verðlag. Þetta er mesta aukning sem mælst hefur milli ára.  Þar áður hafði greiðslukortavelta mest aukist um 24% milli ára bæði í apríl 2021 og apríl 2020, en þá var veirufaraldurinn með öllum sínum takmörkunum á neyslu í hámarki. Sé miðað við aprílmánuð 2019 sést að kortavelta er 19% meiri að raunvirði,“ segir í Hagsjánni.

Þá kemur fram, að alls hafi velta tengd verslun og þjónustu innanlands numið 79 milljörðum og jókst um 10% milli ára á föstu verðlagi, en fyrstu þrjá mánuði ársins hafi kortavelta innanlands verið nokkurn veginn óbreytt milli ára.

Kortavelta Íslendinga erlendis nam 21,6 milljörðum og jókst um 145% milli ára miðað við fast gengi. Alls var um 80% veltunni í apríl í verslun innanlands og 20% erlendis. Hins vegar skýrist tæplega 40% af aukinni veltu milli ára af aukinni veltu innanlands og rúmlega 60% af aukinni veltu erlendis

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK