Andrés Hallgrímsson nýr fjármálastjóri Borgarplasts

Andrés Helgi Hallgrímsson.
Andrés Helgi Hallgrímsson. Ljósmynd/Aðsend

Andrés Helgi Hallgrímsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Borgarplasts og tekur hann við af Ernu Eiríksdóttur. Andrés starfaði áður sem sölustjóri sjávarútvegslausna hjá Wise í tæp 6 ár.

Fram kemur í tilkynningu frá Borgarplasti að Andrés hafi reynslu af fjármálum, rekstri og ráðgjöf og hefur verið fjármálstjóri og framkvæmdastjóri hjá ýmsum fyrirtækjum. Hann starfaði meðal annar sem framkvæmdastjóri hjá Omnis, Cintamani, Múlakaffi og A4. Hann var áður fjármálstjóri Kraftvéla og KFD AS dótturfélags Kraftvéla sem var umboðsaðili Komatsu í Danmörku. Andrés er viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands. 

Borgarplast var stofnað í Borgarnesi árið 1971 og hefur því verið leiðandi á sínu sviði í 51 ár, en fyrirtækið framleiðir fiskiker, frauðkassa fyrir ferskan fisk, húseinangrun og ýmsar fráveitulausnir á borð við olíuskiljur, brunna og rotþrær. Í Mosfellsbæ rekur Borgarplast hverfisteypu fyrir fráveitulausnir og fiskiker. Borgarplast er stærsti söluaðili einangraðra fiskikera á Íslandi ásamt því að selja fiskiker til allra heimsálfa. Í Reykjanesbæ starfrækir fyrirtækið frauðverksmiðju.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK