Empower tryggir sér 300 milljóna króna fjármögnun

Dögg Thomsen og Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, stofnendur Empower.
Dögg Thomsen og Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, stofnendur Empower.

Empower, fyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði jafnfréttis og fjölbreytni, hefur tryggt sér 300 milljóna króna fjármögnun frá Frumtaki og Tennin. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að fjármagnið mun nýtast félaginu við áframhaldandi þróun og markaðssetningu á hugbúnaðarlausninni Empower NOW. Hugbúnaðurinn gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að ná yfirsýn yfir stöðu jafnréttismála, setja sér mælanleg markmið og fræða starfsfólk í gegnum stafrænar leiðir. Stefnt er að því að setja hugbúnaðinn á alþjóðlegan markað á næsta ári.

Empower var stofnað árið 2020 af Þóreyju Vilhjálmsdóttur Proppé og Dögg Thomsen, sem báðar hafa víðtæka reynslu af stefnumótun og breytingastjórnun á sviði jafnréttismála. Félagið hefur veitt fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf í jafnrétti og fjölbreytni með áherslu á fyrirtækjamenningu þar sem unnið er út frá heildrænni nálgun og með praktískar lausnir til að tryggja árangur.

„Ísland hefur skarað fram úr á sviði jafnréttismála svo tekið hefur verið eftir á heimsvísu. Við höfum til að mynda verið efst í jafnréttismælingum The World Economic Forum 12 ár í röð. Við erum leiðandi í jafnréttisvegferðinni á alþjóðlegum vettvangi en vitum að við eigum enn langt í land til að geta talist jafnréttisparadís,“ segir Þórey í tilkynningu frá félaginu.

„Lykilatriði til að ná árangri í þessari vegferð í átt að auknu jafnrétti og fjölbreytni er að horfast í augu við undirliggjandi fordóma og mismunun sem eru til staðar á vinnustöðum og annars staðar í samfélaginu; oftast án þess að við gerum okkur grein fyrir þeim. Við þurfum að kortleggja og skilja stöðuna, setja okkur skýr markmið og hafa viljann til að breyta. Það er mikil eftirspurn frá fyrirtækjum og stofnunum á alþjóðavísu en mjög takmarkað framboð af heildstæðum og sérhæfðum lausnum á þessu sviði.”

„Fjármögnunin gerir okkur kleift að hraða gerð lausnarinnar og koma henni fyrr á alþjóðamarkað,” segir Dögg.

„Í upphafi leggjum við áherslu á Norðurlöndin, Norður-Ameríku og Vestur-Evrópu. Við byggjum á sannreyndri aðferðafræði sem við höfum innleitt í fjölda verkefna og nýja hugbúnaðinum Empower NOW sem hjálpar viðskiptavinum okkar að fá heildræna yfirsýn yfir stöðu jafnréttismála, setja sér mælanleg markmið og fræða starfsfólk í gegnum stafræna örfræðslu.“

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK