Leitað verði til EFTA-dómstólsins vegna lánanna

Neytendasamtökin hafa stefnt Arion banka og Landsbankanum fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur …
Neytendasamtökin hafa stefnt Arion banka og Landsbankanum fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og Íslandsbanka fyrir Héraðsdóm Reykjaness. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag að hluta á kröfu Neytendasamtakanna um að leitað væri ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins vegna skilmála lána með breytilegum vöxtum sem samtökin telja vera ólögleg.

Telja Neytendasamtökin ákvarðanir um vaxtabreytingar á þessum lánum vera verulega matskenndar og ógegnsæjar. Af þeim sök­um sé ekki hægt að sann­reyna hvort þær séu rétt­mæt­ar. Hafa samtökin því stefnt Landsbanka og Arion banka fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og Íslandsbanka fyrir Héraðsdóm Reykjaness, að því er fram kemur í tilkynningu samtakanna.

Mun úrlausnarefnið hafa áhrif á öll lán sem tekin eru eftir gildistöku laga um fasteignalán árið 2017.

„Þetta er stórt skref

Lögmenn Neytendasamtakanna óskuðu eftir að leitað væri ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins vegna lánanna og féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á það að hluta, í einu máli af þremur. 

„Þetta er stórt skref í þá átt að fá kröfur okkar viðurkenndar, en á undanförnum árum hafa fallið dómar sem gefa skýrar vísbendingar um að skilmálarnir séu ólöglegir, meðal annars hjá Evrópudómstólnum. Hann komst að því að óskýrir skilmálar og einhliða vaxtabreytingar er fyrirkomulag sem ekki stenst lög þegar um er að ræða lán til neytenda með breytilegum vöxtum,“ er haft eftir Breka Karlssyni formanni Neytendasamtakanna í tilkynningunni. 

Gæti tekið 6 til 9 mánuði

Málinu hefur nú verið frestað hjá Héraðsdómi þar til niðurstaða liggur fyrir hjá EFTA-dómstólnum, verði niðurstaðan ekki kærð til Landsréttar. Sú málsmeðferð gæti tekið sex til níu mánuði. 

Málinu hefur nú verið frestað hjá héraðsdómi og beðið er eftir að niðurstaða liggi fyrir hjá EFTA-dómstólnum, nema niðurstaða verði kærð til Landsréttar. Sú málsmeðferð gæti tekið 6-9 mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK