Óverðtryggð lán þrefölduðust í faraldrinum

Þá kemur fram að þessa aukningu megi meðal annars rekja …
Þá kemur fram að þessa aukningu megi meðal annars rekja til aukinna íbúðakaupa almennt, sér í lagi á árinu 2020 og 2021. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Óverðtryggð íbúðalán hjá viðskiptabönkunum þrefölduðust í heimsfaraldrinum. Á því tímabili varð veruleg breyting á samsetningu íbúðalána, að því sem fram kemur í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans. 

„Nú er hafið verulega bratt hækkunarferli stýrivaxta og viðbúið að vextir íbúðalána fylgi með tilheyrandi hækkun á greiðslubyrði lána.“

Hlutdeild banka hækkaði um 29 prósentustig

Heildarupphæð útistandandi íbúðalána var, í lok apríl, 2.280 milljarðar króna Þar af var 71 prósent upphæðarinnar hjá viðskiptabönkunum, 22 prósent hjá lífeyrissjóðunum og 7 prósent hjá lánasjóðum ríkisins.

Til samanburðar var hlutdeild viðskiptabankanna 42 prósent, lífeyrissjóða 13 prósent og lánasjóða ríkisins 45 prósent í byrjun árs 2014. Það hefur því orðið mikil breyting á síðustu árum þar sem íbúðalán færast í auknum mæli til bankanna.

Óverðtryggð lán úr 30% í 70%

Hagfræðideildin telur ljóst að lækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands frá árinu 2019 til vormánaða 2021 hafi leitt til þess að um helmingur upphæðar útistandandi íbúðalána séu í dag óverðtryggð, eða um 55 prósent, á móti 45 prósentum verðtryggðra lána. Til samanburðar var 30 prósent heildarupphæðar útlána óverðtryggð og 70 prósent verðtryggð í byrjun árs 2014.

íbúðalán á föstu verðlagi hafa rúmlega tvöfaldast frá byrjun árs 2014, eða aukist um 1.180 milljaðra króna á verðlagi dagsins í dag. 

„Nær öll aukningin skýrist af aukningu óverðtryggðra íbúðalána hjá viðskiptabönkunum sem hafa hækkað um 960 milljarða króna á þessu tímabili, en útlán lánasjóða ríkisins hafa dregist saman um 345 milljarða króna.“

Fastir vextir í kjölfar hækkana

Þá kemur fram að þessa aukningu megi meðal annars rekja til aukinna íbúðakaupa almennt, sér í lagi á árinu 2020 og 2021. 

Eftir vaxtalækkanirnar vegna heimsfaraldursins lá straumurinn aðallega yfir í óverðtryggð íbúðalán hjá viðskiptabönkunum. Á meðan vextir voru hvað lægstir var aðallega um að ræða lán með breytilegum vöxtum, en eftir að Seðlabankinn hóf vaxtahækkunarferlið um mitt ár 2021 sést hreyfing yfir í óverðtryggð lán með föstum vöxtum.

Í gegnum faraldurinn þrefölduðust óverðtryggð íbúðalán hjá viðskiptabönkunum, úr 370 milljörðum króna í 1.090 milljarða. Mun minni breyting var á öðrum tegundum íbúðalána.

Vextir íbúðalána fóru lægst í 3,3 prósent

Stýrivextir voru 4,5 prósent áður en peningastefnunefnd Seðlabankans hóf vaxtalækkunarferlið í maí 2019. Lægstu óverðtryggðu vextir íbúðalána voru þá 2,6% prósent. 

Stýrivextir fóru lægst í 0,75 prósent meðan heimsfaraldurinn stóð sem hæst og fóru lægstu óverðtryggðu vextir íbúðalána þá niður í 3,3 prósent.

„Eftir að peningastefnunefnd hækkaði vexti um eitt prósentustig, þann 22. júní, eru stýrivextir orðnir aðeins hærri en áður en vaxtalækkanirnar hófust, eða 4,75 prósent. Lægstu óverðtryggðu vextir verða 6,25 prósent þegar þær hækkanir, sem búið er að tilkynna um taka gildi.“

Aukin greiðslubyrði

Vaxtabyrðin hefur hækkað úr 110 þúsund krónum á mánuði yfir í 208 þúsund krónur, eða um 98 þúsund krónur, frá því að vextir voru lægstir ef miðað er við 40 milljóna króna lán og lægstu óverðtryggðu íbúðavexti.

Í veðbólgu- og þjóðhagsspá Landsbankans er gert ráð fyrir því að stýrivextir verði sex prósent í lok árs. 

„Miðað við söguna og tengslin milli stýrivaxta og vexti íbúðalána er nokkuð líklegt að lægstu óverðtryggðu vextirnir fari upp í 7% gangi þetta eftir. Sé aftur miðað við 40 milljóna króna lán og lægstu óverðtryggðu íbúðavexti hækkar vaxtabyrðin í 233 þúsund krónur á mánuði, eða um 25 þúsund krónur aukalega á mánuði, miðað við stöðuna í dag ef þetta gengur eftir.“

Þessi hækkun gildir þó aðeins á heimilum þar sem tekin hafa verið íbúðalán með breytilegum vöxtum. Lán með föstum vöxtum verða eðli máls samkvæmt ekki fyrir áhrifum af vaxtahækkunum fyrr en vaxtatímabili lýkur og vextir verða endurskoðaðir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK