Leigja breiðþotu frá Portúgal

Boing 767 vélar Icelandair taka um 260 farþega í sæti.
Boing 767 vélar Icelandair taka um 260 farþega í sæti. Árni Sæberg

Icelandair hefur gert samning við portúgalska flugrekandann Euro Atlantic um leigu á Boeing 767-300-flugvél sem verður nýtt í millilandaflugi Icelandair næstu vikur.

Vélin, sem kom til landsins í gær, verður fyrst og fremst nýtt í Evrópuflug og var fyrsta flug hennar í leiðakerfi Icelandair kl. 7:40 í morgun til borgarinnar München í Þýskalandi. Áætlað er að vélin verði í rekstri Icelandair í um það bil tvær vikur, að því er segir í tilkynningu.

Vélin er ekki í staðlaðri uppsetningu Icelandair enda um skammtímaleigu að ræða sem kemur upp með skömmum fyrirvara. Icelandair mun leitast við að lágmarka áhrif á farþega og verður vélin aðeins notuð þegar nauðsynlegt er til að halda áætlun. Áhöfn verður skipuð að hluta til starfsfólki Icelandair og starfsfólki Euro Atlantic að hluta.

Fram kemur í tilkynningunni að flug og ferðaþjónusta hafi farið hratt af stað eftir Covid-faraldurinn og eftirspurn margfaldast. Á sama tíma hafi uppbygging innviða til að mæta þessari eftirspurn tekið tíma. Þetta hafi meðal annars komið fram í töfum í afgreiðslu á flugvöllum erlendis vegna manneklu sem hafi valdið talsverðum röskunum á flugi. Þá hafi truflun í aðföngum í kjölfar faraldursins valdið töfum á viðhaldsverkefnum.

 „Við erum með metnaðarfulla flugáætlun í sumar, mikla tíðni og fjölbreytta brottfarartíma innan dagsins til að mæta mikilli eftirspurn eftir flugi og ferðalögum í sumar. Þetta umfang hefur einnig gert okkur kleift að bregðast við þeim röskunum sem hafa orðið á flugi vegna aðstæðna sem hafa skapast eftir faraldurinn og tryggja að farþegar okkar komist sem fyrst á leiðarenda. Hins vegar, þar sem allir innviðir eru þandir til hins ýtrasta og tafir hafa orðið á viðhaldi flugvéla, teljum við nauðsynlegt að búa okkur til enn meiri sveigjanleika þegar kemur að flotanum næstu vikurnar. Þetta er mikilvægt til að geta haldið uppi yfirgripsmikilli flugáætlun okkar og til að geta brugðist við ófyrirséðum aðstæðum,“ segir Jens Bjarnason, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Icelandair, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK