Útvega borginni rafmagn fyrir 258 milljónir króna

Götulýsing er hluti af því sem boðið var út í …
Götulýsing er hluti af því sem boðið var út í tímamótaútboði Reykjavíkurborgar á rafmagni. Árni Sæberg

N1 Rafmagn ehf. var með lægsta tilboðið í raforkukaup fyrir allar stofnanir og götulýsingu Reykjavíkurborgar, en tilboðin voru birt á vef borgarinnar á dögunum. N1 bauð 5,65 krónur á hverja kílóvattsstund fyrir almenna notkun en 5,35 krónur fyrir götulýsingu. Það þýðir að N1 er tilbúið að veita þjónustuna fyrir samtals 257,5 milljónir króna á ári, en samið er til þriggja ára.

115,31% og 115.05% af áætlun

Tilboð N1 rafmagns var 115,31% og 115,05% af kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 4,90 krónur fyrir almenna notkun og 4,65 krónur fyrir götulýsingu.

Þrátt fyrir að tilboðin hafi verið yfir kostnaðaráætlun þá er samanlagt tilboð lægstbjóðanda tæplega 20% undir núverandi orkuverði, að því er Guðjón L. Sigurðsson, ljósvistarhönnuður og höfundur útboðslýsingarinnar, segir í samtali við ViðskiptaMoggann.

Guðjón segir einnig að samtals sé um að ræða innkaup á um 46 GWh sem sé langstærsta útboð á raforku á almennum markaði hingað til.

Hingað til hefur Reykjavíkurborg keypt rafmagn af Orku náttúrunnar, dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur, sem er í eigu Reykjavíkurborgar.

Aðrir bjóðendur voru Orkusalan ehf., Orka náttúrunnar og Straumlind ehf.

Tilkynnt verður hvaða fyrirtæki hlýtur samninginn eftir fund innkauparáðs Reykjavíkur þann 15. júlí nk. 

Lestu ítarlegri umfjöllun í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK