Datera ræður tvo nýja sérfræðinga

Ingvar Haraldsson og Andrea Rut Eiríksdóttir.
Ingvar Haraldsson og Andrea Rut Eiríksdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Birtinga- og ráðgjafafyrirtækið Datera hefur ráðið tvo nýja sérfræðinga í teymi fyrirtækisins, þau Andreu Rut Ingvarsdóttur og Ingvar Haraldsson. Hjá Datera starfa nú alls 10 sérfræðingar sem sinna verkefnum á þessu sviði.

Andrea útskrifaðist í vor sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, ásamt því að klára diplómunám í stafrænni markaðssetningu. Með námi starfaði Andrea í verslun Hugo Boss og sá um samfélagsmiðla fyrirtækisins, ásamt því að vera handboltaþjálfari hjá Gróttu. 

Ingvar starfaði áður hjá íslenska tölvuleikjafyrirtækinu Directive Games þar sem hann stýrði öllum markaðsmálum fyrir tölvuleikinn The Machines Arena. Fyrir það starfaði hann við sölu- og þjónustu hjá Bláa lóninu. Ingvar er með M.Sc.-gráðu í vörumerkja- og samskiptastjórnun frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og B.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands.

Við hjá Datera erum virkilega ánægð að fá þau Andreu og Ingvar í liðið og þau koma inn í þéttan hóp reynslumikilla sérfræðinga. Bæði eru þau með fjölbreytta reynslu sem á eftir að nýtast vel í skemmtilegum og krefjandi verkefnum með viðskiptavinum okkar,“ segir Hreiðar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri Datera í tilkynningu fyrirtækisins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK