Disney tekur fram úr Netflix

Disney telur nú fleiri áskrifendur en Netflix.
Disney telur nú fleiri áskrifendur en Netflix. AFP/Nick Agro

Áskrifendur að streymisveitum Disney voru rúmlega 221 milljón talsins í byrjun júlí en það eru fleiri en hjá samkeppnisaðilanum Netflix sem hefur verið að tapa áskrifendum að undanförnu. Er þetta í fyrsta sinn sem streymisveita tekur fram úr Netflix.

Netflix telur 220.67 milljón áskrifendur á heimsvísu eftir að hafa tapað nærri milljón áskriftum á þremur mánuðum.

Disney, sem á einnig streymisveiturnar Hulu og íþróttamiðuðu streymisveituna ESPN+, segir að eftirspurnin eftir Disney+ sé áfram öflug þrátt fyrir að Disney hafi misst réttinn til að sýna indverskt krikket.

Varar fyrirtækið við að það muni draga úr áskrifendafjöldanum í samanburði við fyrri spár.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK