Klappir grænar lausnir fær græna fjármögnun

Jón Ágúst Þorsteinsson forstjóri Klappa.
Jón Ágúst Þorsteinsson forstjóri Klappa.

Hugbúnaðarfyrirtækið Klappir grænar lausnir hefur undirritað samning um svokallaða græna lánsfjármögnun við Nefco, Nordic Green Bank. Lánsfjárupphæðin er trúnaðarmál. Frá þessu er greint í tilkynningu.

Féð mun fyrirtækið nota til að færa út kvíarnar í Evrópu og Norður-Ameríku.

Sérhæfa sig í sjálfbærni

Eins og segir í tilkynningunni sérhæfa Klappir sig í hugbúnaðarlausnum í sjálfbærni. Þróar fyrirtækið hugbúnað og tengir hann við stafrænt sjálfbærnivistkerfi sem gerir rauntímasöfnun, geymslu, vöktun, greiningu og skýrslugjöf upplýsinga sem tengjast losun gróðurhúsalofttegunda mögulega. „Lausnin hjálpar fyrirtækjum og öðrum stofnunum að bera kennsl á losunarþætti þeirra og aðstoðar við að gera ráðstafanir til að minnka kolefnisfótspor þeirra.“

Sjálfbærnilausn Klappa telur nú þegar meira en 6.000 notendur á Íslandi og í Danmörku.

Veita tækni og reynslu

Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa, segir í tilkynningunni að alhliða samvinna, gagnastjórnun og miðlun séu lykillinn að sjálfbærari framtíð.

„Við veitum tæknina og reynsluna sem styður þessa mikilvægu þætti umbóta á sjálfbærni. Vöktun og tenging fyrirtækja á alþjóðlegum grunni, í sjálfbærnilausn eins og Klappir hafa þróað og selt síðan 2015 verður ómissandi þáttur í samkeppnis-, laga- og eftirlitsáætlunum stofnana, sem og fyrir stjórnvöld á öllum stigum.

Græn fjármögnun Nefco gefur Klöppum tækifæri til að halda áfram að vinna að grænni og sjálfbærari framtíð og vaxa og sækja fram á alþjóðlegum mörkuðum,“ segir Jón Ágúst.

Hingað til hefur viðskiptavinum Klappa tekist að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 21% á þriggja ára tímabili og bætt til muna úrgangsflokkun sína, eins og sagt er frá í tilkynningunni.

Græn upplýsingakerfi

„Þetta er gott dæmi um að líta á upplýsingakerfi sem grænar lausnir sem stuðla að breytingu í loftslagsmálum. Við gerum okkur vel grein fyrir því að það getur verið áskorun fyrir mörg fyrirtæki að uppfylla þær kröfur sem flokkunarkerfi ESB og ný tilskipun um sjálfbærni skýrslugerðar fyrirtækja, gerir til þeirra. Þessi tegund af grænum hugbúnaðarlausnum hefur möguleika á að skila árangri og við erum fús til að hjálpa Klöppum á hinum alþjóðlega markaði,“ sagði Thor Thorsteinsson, VP Green Transition, Nordic SME's hjá Nefco í tilkynningunni. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK