Katrín hættir hjá SFF

Katrín Júlíusdóttir
Katrín Júlíusdóttir

Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF), hefur sagt starfi sínu lausu, en hún hefur starfað fyrir SFF í tæp sex ár.

Á vef SFF kemur fram að hún hafi upplýst stjórn samtakanna um ákvörðun sína fyrr í mánuðinum en uppsögnin tekur gildi á fimmtudaginn í þessari viku, 1. september. Hún mun starfa áfram þar til ráðinn hefur verið nýr framkvæmdastjóri en til stendur að auglýsa starfið.

„Árin mín hjá samtökunum hafa verið ótrúlega gefandi, krefjandi og skemmtileg. Er það ekki síst vegna þess að í fjármála- og vátryggingageiranum starfar margt gott fólk sem ég hef átt afar gott samstarf við,“ er haft eftir Katrínu á vefsíðu SFF.

„Eru mér þar minnistæðust snör viðbrögð þeirra þegar heimsfaraldurinn skall á. Viljanum til að ganga eins langt og framast var unnt, til að verja heimili og störf, í miðri óvissunni, gleymi ég seint. Fjármálafyrirtæki gegna vaxandi og mikilvægu hlutverki í okkar samfélagi og það skiptir okkur öll máli að þau hafi styrk til að styðja við fólk og fyrirtæki við ólíkar aðstæður. Ég kveð samtökin með söknuði og þakklæti en einnig tilhlökkun yfir því sem fram undan er.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK