Helgi verkefnastjóri vegna uppbyggingar þjóðarhallar

Helgi Geirharðsson er nýr verkefnastjóri hjá framkvæmdanefnd um uppbyggingu þjóðarhallar …
Helgi Geirharðsson er nýr verkefnastjóri hjá framkvæmdanefnd um uppbyggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal.

Helgi Geirharðsson hefur verið ráðinn nýr verkefnastjóri hjá framkvæmdanefnd um uppbyggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal. Verkefnastjóri vinnur að gerð allra gagna í umboði framkvæmdanefndar og undirbýr og boðar fundi í samstarfi við formann nefndarinnar. Greint er frá þessu í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Síðasta vetur var starfshópur um uppbyggingu þjóðarleikvanga skipaður. Síðar var undirrituð viljayfirlýsing stjórnvalda og Reykjavíkurborgar um nýja þjóðarhöll og í kjölfarið skipuð framkvæmdanefnd um uppbygginguna.

Helgi hefur víðtæka reynslu af uppbyggingu innviða, bæði sem verkefnastjóri og ráðgjafi. Hann hefur unnið að uppbyggingu innviða á Hlíðarenda, í Skerjafirði, í Sundahöfn og Faxaflóahöfnum, í Bláa lóninu, á Hellisheiði og erlendis, bæði fyrir ríki og sveitarfélög og fyrirtæki á borð við Carbfix, Marel, Bechtel, Brimborg og Samskip.

Hlutverk framkvæmdanefndar er að leiða faglega vinnu vegna allra þátta uppbyggingar mannvirkisins og skipulags því tengdu s.s. vegna hönnunar, útboða, tæknilegrar útfærslu, rekstrarforms og hvernig staðið verður að fjármögnun. Einnig að fylgja eftir að nauðsynlegir verkþættir vegna uppbyggingar mannvirkis fyrir innanhússíþróttir í Laugardal séu framkvæmdir samkvæmt þeim reglum sem gilda um opinberar framkvæmdir. Er þá átt við frumathugun, áætlunargerð, verklega framkvæmd og skilamat. Hópnum er falið að útbúa tímasetta framkvæmdaáætlun vegna uppbyggingar mannvirkisins.

Framkvæmdanefndin vinnur sín verkefni í samráði við starfshóp um uppbyggingu þjóðarleikvanga og kallar til ráðgjafa eftir því sem við á. Hún gefur starfshópnum reglulegar upplýsingar um framgang verkefnisins auk þess að tryggja nauðsynlegt samráð við ráðgjafaráð skipað hagsmunaaðilum og öðrum notendum mannvirkisins.

Ráðgert er að byggingaframkvæmdum verði lokið á árinu 2025 að því er segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK