Ætla að koma í veg fyrir viðvarandi verðbólgu

Christine Lagarde.
Christine Lagarde. AFP

Seðlabanki Evrópusambandsins hyggst beita aðgerðum til að koma í veg fyrir að vaxandi verðbólga verði viðvarandi á evrusvæðinu í kjölfar heimsfaraldurs sem og innrásar Rússa í Úkraínu.

Atburðirnir tveir hafa haft gífurleg áhrif á hagkerfi evrusvæðisins og hefur leitt til hækkunar neysluverðs sem að sögn seðlabankastjórans Christine Lagarde hefur reynst „mun meiri og langvarandi“ en búist var við í upphafi. 

Lagarde bætti því við í ræðu sinni í Frankfurt í dag að seðlabankinn yrði að tryggja að himinhá verðbólga festist ekki í sessi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK