Beint: Sjálfbærnidagur Landsbankans

Tilgangurinn með fundinum er að þau sem sækja fundinn eða …
Tilgangurinn með fundinum er að þau sem sækja fundinn eða fylgjast með honum í streymi fái betri innsýn í hvað beri hæst í þessum málaflokki og fái skýrari hugmyndir um næstu skref í sjálfbærnimálum fyrir sitt fyrirtæki eða fjárfestingar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aðalfyrirlesari á sjálfbærnidegi Landsbankans er Tjeerd Krumpelman frá ABN AMRO banka í Hollandi en hann hefur einstakt lag á að tala um sjálfbærni fyrirtækja á mannamáli, að því er segir í tilkynningu frá Landsbankanum. Hann hefur yfir 20 ára reynslu í fjármálageiranum og annast m.a. sjálfbærniráðgjöf hjá ABN AMRO sem er í fararbroddi fjármálafyrirtækja í sjálfbærum fjármálum.

Bankastjóri Landsbankans setur fundinn og fjallar um hlutverk og ábyrgð fjámálafyrirtækja og bankans í sjálfbærni. Framkvæmdastjórar og fulltrúar fyrirtækja í sjávarútvegi, mannvirkjagerð og skipaflutningum fara yfir hvað hefur virkað hjá þeim í þeirra sjálfbærnivinnu og hvað þurfi að gera betur. Einnig verður farið yfir nýja sýn á hagkerfið sem byggir á sjálfbærni.

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan.

 

Fundurinn er sérstaklega ætlaður stjórnendum fyrirtækja, fólki í rekstri og fjárfestum. Tilgangurinn með fundinum er að þau sem sækja fundinn eða fylgjast með honum í streymi fái betri innsýn í hvað beri hæst í þessum málaflokki og fái skýrari hugmyndir um næstu skref í sjálfbærnimálum fyrir sitt fyrirtæki eða fjárfestingar.

Dagskráin hefst kl. 9.00. Í tengslum við fundinn verður fyrsta rafflugvélin á Íslandi til sýnis í Grósku og að fundi loknum býðst gestum að smakka snarl af fyrsta vetnisgrillinu á Íslandi. 

Dagskrá:

  • Setning: Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
  • Fjárfestingar og fyrirtækjarekstur fyrir auðgandi framtíð: Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands.
  • Creating value for stakeholders through impact assessment: Tjeerd Krumpelman, alþjóðasviðsstjóri í sjálfbærni hjá ABN AMRO.
  • Sjálfbær sjávarútvegur - tækifæri og áskoranir: Runólfur V. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur.
  • Vistvænni mannvirkjagerð - út frá sjónarhóli verktaka: Sigrún Melax, gæðastjóri Jáverk ehf.
  • Bætt orkunýting í skipaflutningum: Stefán H. Stefánsson, framkvæmdastjóri Cargow.

Fundarstjóri er Aðalheiður Snæbjarnardóttir, sjálfbærnistjóri Landsbankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK