Ölgerðin hækkar afkomuspá sína

Ölgerðin Egill Skallagrímsson.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Ölgerðin hefur uppfært afkomuspá sína fyrir fjárhagsárið 2022 í kjölfar þess að drög að uppgjöri fyrirtækisins fyrir fyrstu 6 mánuði fjárhagsársins liggja fyrir. Félagið gerir nú ráð fyrir að reksturinn skili hagnaði á bilinu 4,1–4,4 milljarðar króna, en fyrri afkomuspá hafði gert ráð fyrir 3,6–3,9 milljarða króna hagnaði.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að rekja megi breytinguna til tveggja þátta. Annars vegar hafi sala á vörum fyrirtækisins á hótelum og veitingastöðum aukist, ekki síst vegna umtalsverðrar fjölgunar ferðamanna. Hins vegar hafi hlutdeild Ölgerðarinnar í bjórsölu hjá ÁTVR aukist meira en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Þó er áréttað að rekstur félagsins sé árstíðabundinn og sveiflukenndur. Ný afkomuspá sé því háð áhættu- og óvissuþáttum sem geti þýtt að afkoman geti brugðið frá  því sem ráð er fyrir gert í þessari spá. Árshlutareikningur fyrir tímabilið 1. mars 2022–31. ágúst 2022 verður birtur 11. október næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK