Beint: Seðlabankinn kynnir Fjármálastöðugleika

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Árni Sæberg

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Gunnar Jakobsson varaseðlabankastjóri og Haukur C. Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands kynna í dag klukkan 9.30 efni ritsins Fjármálastöðugleika, en ritið sjálft birtist fyrr í morgun. Hægt verður að fylgjast með kynningunni og svörum þremenninganna í beinni útsendingu hér að neðan.

Í riti Fjármálastöðugleika í þetta skiptið er meðal annars farið yfir að alþjóðlegar efnahagshorfur hafa versnað og að það kunni að hafa neikvæð áhrif á íslenskan þjóðarbúskap. Segir jafnframt  að áhætta tengd efnahagsstöðugleika fari versnandi og líklegt að sú þróun haldi áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK