Íbúðaverð hátt á nær alla mælikvarða

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íbúðaverð á landinu er hátt á nær alla mælikvarða en eftir hraðar verðhækkanir frá upphafi síðasta árs eru nú fyrstu vísbendingar um kólnun á íbúðamarkaði komnar fram. Íbúðum sem auglýstar eru til sölu hefur fjölgað verulega. Um miðjan september voru þær um 2.000 en voru um 1.000 á landinu öllu í vor.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýútgefnu riti Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika.

Þá segir í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar að alþjóðlegar efnahagshorfur hafi versnað að undanförnu og kann það að hafa neikvæð áhrif á íslenskan þjóðarbúskap.

„Verðbólga í okkar helstu viðskiptalöndum hefur ekki verið meiri í áratugi og hafa seðlabankar gripið til brattra vaxtahækkana. Þá hefur stríðið í Úkraínu haft í för með sér hærra orkuverð í Evrópu og hefur það ásamt öðrum þáttum aukið óvissu,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá kemur fram að áhætta tengd fjármálastöðugleika hér á landi hafi vaxið vegna versnandi ytri aðstæðna og líkur eru á að sú þróun haldi áfram.

Betri staðan hér en í viðskiptalöndunum

Hins vegar segir að staðan hér á landi sé betri en víðast hvar í viðskiptalöndum okkar en halda þurfi þó fullri árvekni til að varðveita fjármálastöðugleika. Þá sé sérstaklega mikilvægt að viðhalda viðnámsþrótti íslenska fjármálakerfisins vegna hinnar auknu ytri óvissu.

„Viðnámsþróttur kerfislega mikilvægu bankanna er mikill. Eiginfjár- og lausafjárstaða þeirra er sterk. Álagspróf Seðlabanka Íslands fyrir árið 2022 sýnir að bankarnir geta brugðist við ytri áföllum og á sama tíma stutt við heimili og fyrirtæki,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá kemur fram að fjármálastöðugleikanefnd hafi ákveðið að halda sveiflujöfnunaraukanum óbreyttum. Ákvörðun nefndarinnar frá september 2021 um að hækka aukann úr 0% í 2% tekur því gildi á morgun.

Munu áfram beita stýritækjum sínum

„Nefndin áréttar mikilvægi þess að auka öryggi í innlendri greiðslumiðlun til að tryggja rekstrarsamfellu, meðal annars með vísan til vaxandi netógnar. Skref hafa verið tekin í átt að óháðri innlendri smágreiðslulausn sem er mikilvægt í ljósi stöðunnar.

Fjármálastöðugleikanefnd mun áfram beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti,“ segir að lokum í yfirlýsingunni.

Nefndin mun kynna yfirlýsingu sína á blaðamannafundi klukkan 9.30. Sýnt verður frá fundinum í beinni á mbl.is á eftir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK