Heiðrún nýr framkvæmdastjóri SFF

Heiðrún Jónsdóttir.
Heiðrún Jónsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Heiðrún Jónsdóttir, lögmaður, hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, SFF. Hún tekur við starfinu af Katrínu Júlíusdóttur sem hefur verið framkvæmdastjóri frá árinu 2016. Heiðrún hefur strax störf.

Heiðrún hefur starfað sem lögmaður í áraraðir og hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr atvinnulífinu. Hún var í stjórn Íslandsbanka frá 2016, síðast sem varaformaður bankans, en áður var hún stjórnarformaður hjá Íslenskum verðbréfum 2014-2016 og hjá Gildi lífeyrissjóði 2008-2014, síðast sem stjórnarformaður. Þá hefur hún m.a. setið í stjórnum Regins, Icelandair, Símans, Olís, Norðlenska, Reiknistofu bankanna, Ístaks, Arion verðbréfavörslu og Royal Arctic Line á Grænlandi. Hún var framkvæmdastjóri hjá Eimskipum á árunum 2006-2012 þar sem hún stýrði m.a. starfsmannamálum og markaðsmálum. Þá var hún framkvæmdastjóri lögmannsstofunnar Lex á árunum 2003-2005, upplýsingafulltrúi Símans 2001-2003 og starfsmannastjóri og lögfræðingur hjá KEA 1998-2001. Þá hefur hún kennt við lagadeildir Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands og víðar, að því er segir á vef SFF. 

Heiðrún útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1995. Hún fékk lögmannsréttindi 1996 og löggildingu í verðbréfamiðlun 2006. Hún stundaði nám við IESE Business School í Barcelona 2016-2017.

Innan Samtaka fjármálafyrirtækja eru 25 aðildarfélög. Þar starfa nú 6 starfsmenn. Stjórnarformaður er Lilja Björk Einardóttir, bankastjóri Landsbankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK