Þóra segir skilið við Play

Þóra Eggertsdóttir.
Þóra Eggertsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Þóra Eggertsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs flugfélagsins Play, hefur sagt starfi sínu lausu en hún hefur starfað hjá félaginu síðan í maí 2021.

Þóra mun sinna stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs þar til eftirmaður hennar tekur við en tilkynningar þess efnis er að vænta bráðlega, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

„Þóra hefur verið öflug og góð samstarfskona á því mikla uppbyggingartímabili sem Play hefur verið í síðasta eina og hálfa árið. Hún hefur byggt upp gríðarlega öflugt og flott teymi með sér og lagt grunn sem við munum byggja á í framtíðinni,“ er haft eftir Birgi Jónssyni forstjóra.

„Ég þakka Þóru innilega fyrir gott og faglegt samstarf og hennar mikilvæga framlag um leið og ég óska henni velfarnaðar í hverju því sem hún tekur sér fyrir hendur í næsta kafla.”

Ákveðið að breyta til

Þá kveðst hún stolt af því að hafa fengið tækifæri til að vinna fyrir Play sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs á þeim tíma er félagið var í uppbyggingarfasa.

„Stoltust er ég af fjármálateyminu sem við höfum byggt upp síðustu misseri og mun sannarlega sakna samstarfsfólksins. Ég hef ákveðið að breyta til og skipta um takt og ákvað að segja skilið við félagið. Ég óska PLAY alls hins besta og hlakka til að fylgjast með úr örlítið meiri fjarlægð.”

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK