Hættir sem ferðamálastjóri

Skarphéðinn Steinarsson ferðamálastjóri.
Skarphéðinn Steinarsson ferðamálastjóri. mbl.is/Eggert

Skarphéðinn Steinarsson hefur ákveðið að láta af störfum sem ferðamálastjóri. Hann greindi starfsfólki sínu frá þessu í morgun og segir frá ákvörðun sinni á Facebook rétt í þessu.

„Í lok þessa árs verða liðin fimm ár frá því ég tók við embætti ferðamálastjóra. Ég er mjög sáttur við tíma minn í þessu starfi, viðfangsefnin hafa verið fjölbreytt og gefandi.

Mér býðst að halda áfram í önnur fimm ár en hef tekið þá ákvörðun að láta staðar numið um áramótin. Hugur minn stendur til þess að takast á við nýjar áskoranir í ferðaþjónustu.
Hvað það verður nákvæmlega á eftir að koma í ljós en víst er að næg eru tækifærin,“ segir Skarphéðinn í færslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK