Empower ræður fjóra nýja starfsmenn

Anna Berglind Jónsdóttir.
Anna Berglind Jónsdóttir.

Nýsköpunarfyrirtækið Empower hefur ráðið til sín fjóra hugbúnaðarsérfræðinga. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að nýja starfsfólkið komi til með að vinna að þróun Empower Now, sem er ný hugbúnaðarlausn sem gerir fyrirtækjum og stofnunum á alþjóðavísu kleift að ná yfirsýn yfir stöðu jafnréttis og fjölbreytni, setja mælanleg markmið og innleiða örfræðslu fyrir starfsfólk í gegnum stafrænar leiðir.

Anna Berglind Jónsdóttir hefur verið ráðin sem hugbúnaðarsérfræðingur, en hún starfaði áður við hugbúnaðargerð hjá Lucinity. Anna Berglind er með BS gráðu í heilbrigðisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og BS gráðu í tölvunarfræði frá sama skóla.

Helgi Gylfason hefur verið ráðinn sem hugbúnaðarsérfræðingur, en hann starfaði áður við hugbúnaðargerð hjá Hugfimi. Helgi er með MS gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Helgi Gylfason.
Helgi Gylfason.

Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem hugbúnaðarsérfræðingur, en hún starfaði áður sem forritari hjá Valitor. Sigurbjörg Rós er með BS gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir.
Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir.

Zakia Shafaee hefur verið ráðin sem hugbúnaðarsérfræðingur, en hún starfaði áður sem forritari hjá Skógræktinni. Zakia er með BS gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Zakia Shafaee.
Zakia Shafaee.

Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, framkvæmdastjóri og meðeigandi Empower, segir í tilkynningunni að stefnt sé að því að setja Empower Now á alþjóðamarkað haustið 2023 og að mikil eftirspurn sé á erlendum mörkuðum eftir lausnum er varða jafnrétti og fjölbreytni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK