Sýningarréttur á Ævintýrum Tulipop seldur til tíu landa

Helga Árnadóttir og Signý Kolbeinsdóttir stofnuðu Tulipop árið 2010 og …
Helga Árnadóttir og Signý Kolbeinsdóttir stofnuðu Tulipop árið 2010 og hafa fylgt félaginu eftir. Árni Sæberg

Sýningarréttur á teiknimyndaþáttaröðinni Ævintýri Tulipop hefur nú þegar verið seldur til tíu landa. Fyrir utan Ísland eru sýningar þegar hafnar í Noregi. Í öðrum ríkjum, s.s. í Finnlandi, Kanada, Póllandi, Suður- Afríku og í Mið-Austurlöndum, hefst sýning þáttaraðanna á næsta ári.

Þættirnir hafa notið vinsælda hér á landi og slegið áhorfendamet í Sjónvarpi Símans. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst er þetta fyrsta teiknimyndaþáttaröðin sem byggist á íslensku hugverki sem fer í alþjóðlega dreifingu.

„Við erum mjög ánægð með þennan árangur,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Tulipop.

„Við höfum stefnt að því um árabil að framleiða vandaðar teiknimyndir fyrir börn, sem henta til alþjóðlegrar dreifingar í sjónvarpi. Þetta er metnaðarfull teiknimyndaþáttaröð sem byggist á íslensku hugviti. Sala á sýningarrétti þáttanna er því ekki aðeins viðurkenning á þáttunum sjálfum og efni þeirra, heldur líka á íslensku hugviti og því sem hægt er að skapa hér á landi.“

Hver þáttaröð inniheldur 13 þætti, og búið er að semja um framleiðslu á fjórum þáttaröðum. Fyrsta þáttaröðin er sem fyrr segir komin í sýningu og framleiðsla á annarri þáttaröð er langt komin. Breska dreifingarfyrirtækið Serious Kids sér um alþjóðlega sölu þáttaraðarinnar.

Reynslumikið fólk í framleiðslu

Ævintýri Tulipop byggist í stuttu máli á hinum séríslenska ævintýraheimi sem nefnist Tulipop og fjölbreyttu persónunum sem þar búa, en Tulipop-heimurinn hefur notið vinsælda meðal barna og fullorðinna á Íslandi um árabil. Þær Helga og Signý Kolbeinsdóttir, hönnuður og skapari Tulipop-heimsins, stofnuðu Tulipop árið 2010.

Til að vinna að handritsgerð þáttanna fengu þær til liðs við sig hóp reynslumikilla handritshöfunda. Þar má nefna Gunnar Helgason barnabókahöfund, Davey Moore, sem er reynslumikill breskur höfundur og hefur unnið með Puffin Rock og Rastamouse svo tekin séu dæmi, og Sara Daddy, sem hefur verið yfirhandritshöfundur við gerð barnaefnis fyrir bæði Disney og BBC.

Sögupersónur Ævintýra Tulipop.
Sögupersónur Ævintýra Tulipop.

Leikstjóri þáttaraðarinnar er Sigvaldi J. Kárason. Fyrir utan fjölda íslenskra kvikmynda og sjónvarpsþátta starfaði hann um áraraðir fyrir Latabæ og hefur því talsverða reynslu af gerð barnaefnis. Gísli Galdur Þorgeirsson semur tónlist fyrir þættina og Gunnar Árnason í Upptekið sér um hljóðvinnslu. Mikill metnaður er lagður í tónlist þáttanna, meðal annars með frumsömdu lagi og texta í hverjum þætti.

„Það er mikil þekking og reynsla til staðar hér á landi til að vinna að efni og framleiðslu þáttanna og við höfum verið svo heppin að fá að njóta þess við framleiðslu á Ævintýri Tulipop,“ segir Helga.

Talsett á mörgum tungumálum

Þá er töluverð áhersla lögð á talsetningu þáttaraðarinnar en um 350 börn mættu í opnar áheyrnarprufur fyrir hlutverkin, sem haldnar voru í nóvember á síðasta ári fyrir sýningar hér á landi. Þá eru þættirnir talsettir á tungumálum allra þeirra landa sem þeir eru sýndir í. Helga segir það skipta miklu máli.

„Talsetning barnaefnis færir efnið nær börnum í hverju landi. Við lítum þannig á að það auki jafnframt gæði þáttanna og þess efnis sem verið er að sýna börnum,“ segir hún.

Hún segir að sala á þáttaröðinni sé í raun rétt að hefjast, en stefnt sé að því að fyrir lok næsta árs verði búið að selja sýningarrétt til yfir 20 landa, og að þáttaröðin verði komin í sýningar í yfir 80 löndum innan nokkurra ára.

„Við viljum að sjálfsögðu selja þættina sem víðast og teljum að efni þeirra og boðskapur eigi erindi út um allan heim,“ segir Helga og vísar þar til þess að hver þátturinn innihaldi óvæntar og skemmtilegar uppákomur þar sem fimm sögupersónur þáttanna þurfa að takast á við fjölbreyttar áskoranir með vináttu og samvinnu að leiðarljósi.

Varningur til nú þegar

Framleiðsla svona þáttaraðar er stórt og umfangsmikið verkefni, en að verkefninu koma hátt í 100 manns í heildina. Spurð um fjármögnun verkefnisins segir Helga að Tulipop hafi fengið til liðs við sig öfluga fjárfesta sem hafa veitt verkefninu lið enda hafi þeir haft trú á því. Auk þess hefur framleiðslan fengið veglegan stuðning frá Kvikmyndamiðstöð Íslands, Nordisk Film og TV Fond. Verkefnið fær einnig endurgreiddan hluta þess framleiðslukostnaðar sem fellur til á Íslandi og segir Helga að hækkun endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar úr 25% í 35% skipti miklu máli og styðji við áframhaldandi uppbyggingu framleiðsluteymisins hér á landi.

Helga segir framleiðslu þáttaraðarinnar í raun bara vera byrjunina á ferðalagi Tulipop-hugverksins um heiminn, en þegar krakkar kynnast Tulipop-heiminum og persónum hans á sjónvarpsskjánum verða til fjölmörg tækifæri til að nýta hugverkið, til dæmis í útgáfu bóka, tölvuleikjum, leikföngum og öðrum varningi. Þá kemur sér vel að ýmis varningur í kringum sögupersónur Tulipop-ævintýraheimsins er nú þegar til eftir þann rúma áratug sem félagið hefur starfað. Félagið hefur hannað og látið framleiða yfir 300 vörur sem tengjast Tulipop og gert svonefnda nytjaleyfissamninga um frekari framleiðslu á varningi.

„Í flestum tilvikum þurfa framleiðendur að veðja á að sjónvarpsefni eða kvikmyndir nái ákveðnum vinsældum áður en framleiðsla og sala á varningi sem þeim tengist getur hafist. Í okkar tilviki höfum við þó það forskot að varningurinn er nú þegar til og þar er hægt að gera enn meira,“ segir Helga að lokum.

Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn úr þáttunum

https://www.youtube.com/watch?v=Nv4KdfkbYbI

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK