Orkubú Vestfjarða og e1 í samstarf

Elís Jónatansson orkubússtjóri og Hafrún Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri e1.
Elís Jónatansson orkubússtjóri og Hafrún Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri e1. Ljósmynd/Aðsend

Orkubú Vestfjarða og e1 hafa undirritað samstarfssamning varðandi umsjón og þjónustu fyrir allar hleðslustöðvar Orkubúsins á Vestfjörðum.

Orkubú Vestfjarða hóf vegferðina fyrir orkuskiptin á Vestfjörðum árið 2017 með fyrstu hleðslustöð fyrirtækisins og í dag rekur það net hleðslustöðva víðsvegar um Vestfirði. Alls eru stöðvarnar 16 talsins í níu 9 sveitarfélögum, að því er kemur fram í tilkynningu.

e1 hefur síðustu ár unnið að þróun opins markaðstorgs fyrir hleðslustöðvar með því markmiði að tengja rafbílaeigendur og eigendur hleðslustöðva með einföldum hætti og efla þannig uppbyggingu innviða fyrir rafbíla.

Til þess að fagna áfanganum verður frítt í hleðslustöðvar Orkubús Vestfjarða dagana 3. – 9. nóvember.

Hleðslustöðvar Orkubús Vestfjarða má finna á eftirfarandi stöðum: Bjarkarlundi, Flókalundi, Hólmavík, Hvítanesi, Ísafirði, Patreksfirði, Reykjanesi, Tálknafirði og Þingeyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK