Atvinnuleysi var 2,8% í október 2022 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands.
Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 79,8% og hlutfall starfandi 77,5%, að því er segir á vef Hagstofu Íslands.
„Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 0,8 prósentustig á milli mánaða á meðan árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi jókst um 0,9 prósentustig. Leitni árstíðaleiðrétts atvinnuleysis hélst stöðugt síðustu sex mánuði á meðan leitni hlutfalls starfandi dróst saman um 0,2 prósentustig,“ segir jafnframt.