Vaxandi eftirspurn og þörf fyrir fjárfestingu í gistirýmum

Hlutfall endurkomufarþega er að hækka og stefnir stór hluti þeirra …
Hlutfall endurkomufarþega er að hækka og stefnir stór hluti þeirra sem vilja koma aftur til Íslands á það að heimsækja Norðurland og Vestfirði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bætt nýting utan háannar, vaxandi eftirspurn og þörf fyrir fjárfestingu í gistirýmum er einkennandi fyrir þá stöðu sem blasir við í norðlenskri ferðaþjónustu. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í greiningu KPMG á gistirýmum á Norðurlandi, sem unnin var fyrir Markaðsstofu Norðurlands í haust.

Þá segir að tækifæri til fjárfestingar í gistirýmum á Norðurlandi séu góð, en í skýrslunni kemur fram að nýting hótelherbergja séu í hæstu hæðum og að stærri hótel og hótel í fjölmennari þéttbýliskjörnum séu svo gott sem fullbókuð yfir háannartímann.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands. 

Fram undan er aukið millilandaflug á Norðurlandi og fjölgun ferðamanna …
Fram undan er aukið millilandaflug á Norðurlandi og fjölgun ferðamanna sem koma beint til Norðurlands í samræmi við það. mbl.is/Margrét Þóra

Fleiri ferðamenn samfara auknu millilandaflugi á Norðurlandi

Þá segir, að útlit sé fyrir aukna eftirspurn yfir vetrarmánuðina og samkvæmt öllum þeim sviðsmyndum sem komi fram í greiningu KPMG muni nýtingarhlutfall gistirýma hækka í samræmi við það.

„Ástæðan er sú að framundan er aukið millilandaflug á Norðurlandi og fjölgun ferðamanna sem koma beint til Norðurlands í samræmi við það, til viðbótar við mikla eftirspurn eftir Íslandi sem áfangastað og fjölgun ferðamanna sem fljúga til Keflavíkur.

„Innanlandsmarkaður er sterkur hér á Norðurlandi, framboð af flugi stöðugt …
„Innanlandsmarkaður er sterkur hér á Norðurlandi, framboð af flugi stöðugt að aukast og tækifærin til uppbyggingar á svæðinu aldrei verið fleiri en nú,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Niceair flýgur nú þegar til Danmerkur og Spánar, og mun á vormánuðum bæta Dusseldorf í Þýskalandi við leiðarkerfið sitt. Þýska flugfélagið Condor mun svo hefja flug til Akureyrar í maí og Icelandair hefur hafið sölu á innanlandsflugi frá Keflavík til Akureyrar, sem auðveldar ferðalagið norður til muna fyrir erlenda ferðamenn. Að lokum heldur Voigt Travel svo uppteknum hætti og flýgur áfram á næsta ári frá Amsterdam til Akureyrar að vetri og frá Rotterdam yfir sumarmánuðina,“ segir í tilkynningunni. 

Stór hluti ferðamanna vill koma aftur

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, segir í tilkynningunni að eftirspurn eftir Norðurlandi sé greinilega að aukast og einnig þrýstingur frá erlendum ferðaskrifstofum sem selji Ísland að bæta fjölbreyttari vörum í framboð sitt til ferðamanna.

„Hlutfall endurkomufarþega er að hækka og stefnir stór hluti þeirra sem vilja koma aftur til Íslands á það að heimsækja Norðurland og Vestfirði. Fjárfesting í afþreyingu er greinilega að skila sér og stýrir því að einhverju leyti hvert ferðamenn fara þó náttúruperlur séu enn efst á listanum yfir það. Innanlandsmarkaður er sterkur hér á Norðurlandi, framboð af flugi stöðugt að aukast og tækifærin til uppbyggingar á svæðinu aldrei verið fleiri en nú.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK