Uppstokkun á framkvæmdastjórn Kviku

Sigurður Viðarsson hefur verið forstjóri TM um árabil. Hann verður …
Sigurður Viðarsson hefur verið forstjóri TM um árabil. Hann verður nú aðstoðarforstjóri Kviku. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, mun taka við stöðu aðstoðarforstjóra Kviku banka af Ármanni Þorvaldssyni sem mun einbeita sér að uppbyggingu á starfsemi Kviku í Bretlandi.

Ármann, sem var forstjóri Kviku þar til hann og Marinó Örn Tryggvason höfðu stólaskipti árið 2019, mun halda áfram sem stjórnarformaður í dótturfélögum bankans í Bretlandi ásamt því að sinna afmörkuðum verkefnum fyrir Kviku.

Þá hefur Eiríkur Magnús Jensson verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs hjá Kviku. Eiríkur hefur starfað í Arion banka og forverum hans frá árinu 1988, lengst af við fjármögnun bankans. Undanfarin ár hefur hann verið forstöðumaður fjárstýringar.

Ármann Þorvaldsson var aðstoðarforstjóri Kviku en mun nú einbeita sér …
Ármann Þorvaldsson var aðstoðarforstjóri Kviku en mun nú einbeita sér að rekstri Kviku í Bretlandi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tvö tekjusvið

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kviku banka, en stjórn bankans samþykkti í morgun tillögu forstjóra um breytt skipurit. í tilkynningunni kemur fram að markmið breytinganna sé að gera félagið betur í stakk búið til þess að halda áfram að ná árangri í rekstri.

Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kviku Securites, mun koma nýr inn í framkvæmdastjórn samstæðu Kviku.

Hluti viðskiptabankasviðs og fjárfestingabankasvið mun mynda nýtt tekjusvið: fyrirtæki og markaðir. Áætlað er að sviðið taki til starfa þann 1. janúar nk. Eftir breytingarnar verða tvö tekjusvið rekin í Kviku banka, viðskiptabanki annars vegar og fyrirtæki og markaðir hins vegar. Því til viðbótar eru þrjú tekjusvið rekin í dótturfélögum: TM, Kvika eignastýring og Kvika Securites í Bretlandi.

Ragnar og Baldur láta af störfum

Framkvæmdastjóri fyrirtækja og markaða verður Bjarni Eyvinds Þrastarson, sem hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra fjárfestingabankasviðs. Sviðið verður samsett úr fjórum deildum: verðbréfa- og gjaldeyrismiðlun, fyrirtækjaráðgjöf og fyrirtækjalán.

Aðstoðarframkvæmdastjóri sviðsins og forstöðumaður fyrirtækjalána verður Magnús Guðmundsson, sem hefur gegnt stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs.

Vilhjálmur Vilhjálmsson verður áfram forstöðumaður gjaldeyrismiðlunar.

Erlendur Davíðsson hefur verið ráðinn í stöðu forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar. Erlendur hefur yfirgripsmikla reynslu á fjármálamarkaði sem nær aftur til ársins 2005. Síðustu ár starfaði hann sjálfstætt við fyrirtækjaráðgjöf og þar á undan m.a. sem sjóðstjóri og forstöðumaður hlutabréfasjóða hjá forvera Kviku eignastýringar og í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka.

Ragnar Páll Dyer, fjármálastjóri Kviku, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Ragnar mun áfram sitja í stjórnum TM og Kviku Securities í London.

Baldur Stefánsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Kviku, mun láta af störfum á næstu vikum og hyggst hann hefja eigin rekstur. Gengið hefur verið frá viljayfirlýsingu þess efnis að Kvika komi að þeim rekstri.

Baldur Stefánsson mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar og …
Baldur Stefánsson mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar og hefja eigin rekstur.

Nýtt dótturfélag í undirbúningi

Starfsemi Kviku banka fer nú fram undir mörgum vörumerkjum. Helstu vörumerkin eru auk Kviku, TM, Kvika eignastýring, Lykill, Auður, Netgíró, Aur og Ortus Secured Finance.

Starfsemi nýs dótturfélags á sviði greiðslumiðlunar er jafnframt í undirbúningi.

 „Kvika hefur breyst mikið á undanförnum árum. Þegar ég hóf störf hjá félaginu voru starfsmenn innan við 90, en eru nú yfir 350. Auk þeirra vinna tugir verktaka að þróun margvíslegra nýjunga, sem verða kynntar á næstu mánuðum. Eitt af markmiðum Kviku er að auka samkeppni á fjármálamarkaði og í því skyni erum við stöðugt að þróa nýjar vörur sem auka fjölbreytni og valkosti viðskiptavina,“ segir Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku banka, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK